Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur tilkynnt forseta Íslands að á grundvelli samtala við formenn Viðreisnar og Bjartrar framtíðar ætli flokkarnir þrír að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.
Óformlegar viðræður milli flokkanna hafa staðið yfir frá því í síðustu viku. Formenn Viðreisnar og Bjartrar framtíðar, Benedikt Jóhannesson og Óttarr Proppé, hittu Bjarna á fundi síðdegis í dag.
Evrópumálin hafa verið helsti ásteytingarsteinninn í viðræðum Sjálfstæðisflokks annars vegar og Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hins vegar um myndun nýrrar ríkisstjórnar á undanförnum dögum. Samkvæmt heimildum Kjarnans hefur myndast umræðugrundvöllur fyrir breytingar í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum sem allir aðilar geta sætt sig við að byggja formlegar umræður á en í Evrópumálum hefur enginn verið tilbúinn að gefa neitt eftir. Nú virðast formennirnir þó hafa orðið sammála um að mögulega verði hægt að finna lausn á málinu og ætla að hefja formlegar viðræður. Því er ljóst að ekkert verður af því að Bjarni skili stjórnarmyndunarumboðinu og að Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, fái það líkt og margt stefndi í.
Andstæðir pólar í Evrópumálum
Það er yfirlýst stefna Sjálfstæðisflokksins að ganga ekki inn í Evrópusambandið og flokkurinn stóð að því að draga umsókn Íslands að því til baka ásamt Framsóknarflokki á síðasta kjörtímabili. Fjórir af þeim sex þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sem leiddu kjördæmi flokksins fyrir síðustu kosningar, þar á meðal formaðurinn Bjarni Benediktsson, höfðu hins vegar lofað því að áframhald viðræðna um aðild að Evrópusambandinu yrði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu á kjörtímabilinu. Allir fjórir urðu síðar ráðherrar í þeirri ríkisstjórn sem tók við völdum vorið 2013. Engir fyrirvarar um meirihluta á Alþingi, meirihluta innan ríkisstjórnar eða sýnilegan þjóðarvilja í skoðanakönnunum voru settir fram. Bjarni Benediktsson sagði það reyndar oftar en nokkur annar Sjálfstæðismaður að þjóðaratkvæðið myndi fara fram og að flokkur hans myndi standa við það. Þegar kom að því að draga umsóknina til baka, og gera þá án þjóðaratkvæðagreiðslu, bar Bjarni fyrir sig „pólitískan ómöguleika“ þess að halda slíka í ljósi þess að báðir þáverandi stjórnarflokkar voru andvígir aðild. Við þá línu hefur Sjálfstæðisflokkurinn haldið sig alla tíð síðan og enginn vilji virðist til að gefa neitt eftir varðandi hana.
Viðreisn varð til út úr þeim óróleika og mótmælum sem fylgdu því að draga aðildarumsóknina til baka. Hópur alþjóðasinnaðra Sjálfstæðismanna hóf að undirbúa myndun nýs stjórnmálaafls strax í apríl 2014. Eitt helsta stefnumál Viðreisnar hefur alla tíð verið að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin um hvort viðræðum við Evrópusambandið verði haldið áfram. Á því máli getur flokkurinn ekki gefið afslátt. Björt framtíð er sömuleiðis með Evrópuaðild á sinni stefnuskrá.