Ákveðið að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður

Bjarni
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur til­kynnt for­seta Íslands að á grund­velli sam­tala við for­menn Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar ætli flokk­arnir þrír að hefja form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­ur. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Sjálf­stæð­is­flokkn­um. 

Óform­legar við­ræður milli flokk­anna hafa staðið yfir frá því í síð­ustu viku. For­menn Við­reisnar og Bjartrar fram­tíð­ar, Bene­dikt Jóhann­es­son og Ótt­arr Proppé, hittu Bjarna á fundi síð­degis í dag. 

Evr­­ópu­­málin hafa verið helsti ásteyt­ing­­ar­­steinn­inn í við­ræðum Sjálf­­stæð­is­­flokks ann­­ars vegar og Við­reisnar og Bjartrar fram­­tíðar hins vegar um myndun nýrrar rík­­is­­stjórn­­ar á und­an­förnum dög­um. Sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hefur mynd­­ast umræð­u­grund­­völlur fyrir breyt­ingar í sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­­málum sem allir aðilar geta sætt sig við að byggja for­m­­legar umræður á en í Evr­­ópu­­málum hefur eng­inn verið til­bú­inn að gefa neitt eft­­ir. Nú virð­ast for­menn­irnir þó hafa orðið sam­mála um að mögu­lega verði hægt að finna lausn á mál­inu og ætla að hefja form­legar við­ræð­ur. Því er ljóst að ekk­ert verður af því að Bjarni skili stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu og að Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, fái það líkt og margt stefndi í.

Auglýsing

And­stæðir pólar í Evr­ópu­málum

Það er yfir­­lýst stefna Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins að ganga ekki inn í Evr­­ópu­­sam­­bandið og flokk­­ur­inn stóð að því að draga umsókn Íslands að því til baka ásamt Fram­­sókn­­ar­­flokki á síð­­asta kjör­­tíma­bil­i. Fjórir af þeim sex þing­­­mönnum Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins sem leiddu kjör­­­dæmi flokks­ins fyrir síð­­­­­ustu kosn­­­ing­­ar, þar á meðal for­­mað­­ur­inn Bjarni Bene­dikts­­son, höfðu hins vegar lof­að því að áfram­hald við­ræðna um aðild að Evr­­­ópu­­­sam­­­band­inu yrði sett í þjóð­­­ar­at­­­kvæða­greiðslu á kjör­­­tíma­bil­inu. Allir fjórir urðu síðar ráð­herrar í þeirri rík­­­is­­­stjórn sem tók við völdum vorið 2013. Engir fyr­ir­varar um meiri­hluta á Alþingi, meiri­hluta innan rík­­­is­­­stjórnar eða sýn­i­­­legan þjóð­­­ar­vilja í skoð­ana­könn­unum voru settir fram. Bjarni Bene­dikts­­­son sagði það reyndar oftar en nokkur annar Sjálf­­­stæð­is­­­maður að þjóð­­­ar­at­­­kvæðið myndi fara fram og að flokkur hans myndi standa við það. Þegar kom að því að draga umsókn­ina til baka, og gera þá án þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðslu, bar Bjarni fyrir sig „póli­­tískan ómög­u­­leika“ þess að halda slíka í ljósi þess að báðir þáver­andi stjórn­­­ar­­flokkar voru and­vígir aðild. Við þá línu hefur Sjálf­­stæð­is­flokk­­ur­inn haldið sig alla tíð síðan og eng­inn vilji virð­ist til að gefa neitt eftir varð­andi hana.

Við­reisn varð til út úr þeim óró­­leika og mót­­mælum sem fylgdu því að draga aðild­­ar­um­­sókn­ina til baka. Hópur alþjóða­sinn­aðra Sjálf­­stæð­is­­manna hóf að und­ir­­búa myndun nýs stjórn­­­mála­afls strax í apríl 2014. Eitt helsta stefn­u­­mál Við­reisnar hefur alla tíð verið að þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðsla verði haldin um hvort við­ræðum við Evr­­ópu­­sam­­bandið verði haldið áfram. Á því máli getur flokk­­ur­inn ekki gefið afslátt. Björt fram­­tíð er söm­u­­leiðis með Evr­­ópu­að­ild á sinni stefn­u­­skrá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None