Már Guðmundsson
Auglýsing

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands verða óbreyttir áfram í 5,25 pró­sent­um. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans frá því í morg­un. 

Sam­kvæmt nýrri verð­bólgu­spá bank­ans er útlit fyrir að verð­bólga verði undir mark­miði fram á mitt næsta ár, en verði svo 2,5 til 3 pró­sent eftir það. Verð­bólgan mæld­ist 1,8% í októ­ber og hefur nú hald­ist undir mark­miði í tæp­lega þrjú ár, „þrátt fyrir miklar launa­hækk­anir og öran vöxt eft­ir­spurn­ar. Við­skipta­kjara­bati, lítil alþjóð­leg verð­bólga og hækkun gengis krón­unnar hafa vegið á móti áhrifum launa­hækk­ana á verð­bólg­u.“ 

Verð­bólgu­spáin er tölu­vert breytt frá fyrri spá, en það skýrist að miklu leyti af því að gengi krón­unnar er spáð en ekki gert ráð fyrir að það hald­ist óbreytt allt tíma­bilið sem skoðað er. Verð­bólgu­horfur hafa batn­að, einkum til skemmri tíma. Engu að síður er ekki eins mikið til­efni til að bregð­ast við að mati pen­inga­stefnu­nefndar eins og ætla mætti, „vegna þess að pen­inga­stefnu­nefnd hefur byggt ákvarð­anir sínar að und­an­förnu á mati sem tók til­lit til þess að tölu­verðar líkur voru á hækkun gengis krón­unn­ar.“ 

Auglýsing

Ákvörð­unin er byggð á verð­bólgu­spánni og áhættu­mati. Pen­inga­stefnu­nefnd nefnir sér­stak­lega óvissu um stefnu í rík­is­fjár­mál­um, þar sem aðhald hennar hafi slaknað nokkuð und­an­farin tvö ár og óljóst sé hver efna­hags­stefna næstu rík­is­stjórnar verði. „ Þá gætir óróa á vinnu­mark­aði, ekki síst í kjöl­far nýlegs úrskurðar um hækkun launa þjóð­kjör­inna full­trúa. Að auki gætir áfram óvissu um áhrif los­unar fjár­magns­hafta, en vel hefur gengið fram til þessa. Við bæt­ist óvissa um alþjóð­legar efna­hags­horf­ur.“ 

Kröft­ugur vöxtur eft­ir­spurnar og ofan­greindir óvissu­þættir á var­kárni við ákvörðun vaxta, þótt kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga við mark­miðið virð­ist vera að styrkj­ast og aðhald pen­inga­stefn­unnar hafi að hluta auk­ist í gegnum hærra gengi krón­unn­ar, segir nefnd­in. 

Þá kemur einnig fram í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar að Seðla­bank­inn hafi und­an­farna mán­uði keypt hlut­falls­lega minna af gjald­eyr­is­inn­streym­inu en hann gerði fyrr á þessu ári. Nefndin telur rétt að halda áfram á þeirri braut að óbreyttu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None