Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segir að áherslur VG í skattamálum eigi ekki að koma neinum á óvart.
„Við lofum nefnilega ekki auknum útgjöldum í heilbrigðisþjónustu og skólamálum (sem allir segjast vilja) nema við teljum að við getum aflað tekna á móti og að þeirra tekna sé aflað með réttlátum hætti. Að sjálfsögðu er þetta vinstrisinnuð stefna en það er nú ekki hægt að saka okkur um að hafa siglt undir fölsku flaggi í þeim efnum,“ segir Katrín í færslu á Facebook-síðu sinni í dag.
Katrín segir að einhverjir séu nú að „missa sig vegna umræðna um skattamál.“ Fjallað var um það bæði í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í morgun að mismunandi skattastefnur séu eitt helsta ágreiningsmálið í viðræðum flokkanna fimm sem nú eiga í formlegum stjórnarmyndunarviðræðum.
„Því er rétt að benda á að Vinstri græn hafa lagt þunga áherslu á það að farið verði í kerfisbreytingar sem miða að því að auka jöfnuð og draga úr misskiptingu í samfélaginu. Í því felst að sótt verði fram í heilbrigðis-, mennta- og velferðarmálum samhliða umbótum í skattamálum sem annars vegar miða að því að fjármagna þessa sókn og hins vegar að því að velta skattbyrði af lág- og millitekjuhópum yfir á hátekjuhópa,“ skrifar Katrín.
Hún segir að til þess að hægt verði að ráðast í nauðsynlegar aðgerðir í heilbrigðis- og menntamálum og leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja, þurfi ríkisstjóður auknar tekjur. „Þessar tekjur viljum við tryggja með því að taka á skattsvikum sem varlega eru áætluð um 80 milljarðar á ári, með því að tryggja auknar tekjur af nýtingu sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar og kanna möguleika á því að skattleggja fjármagnið sem þar er að finna. Þetta þýðir kerfisbreytingar í skattamálum sem færa skattbyrði af lág- og millitekjuhópum yfir á hátekjuhópa. Þannig aukum við jöfnuð og tryggjum að allir njóti þeirrar uppsveiflu sem er í efnahagslífinu.“