Bjarni Benediktsson, starfandi fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að staða ríkisfjármála sé frá hans bæjardyrum séð betri en áður hafði verið gert ráð fyrir.
Hann gagnrýnir ummæli Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri-grænna, í fréttum í gær þar sem hún sagði stöðu ríkisfjármála þrengri en búist hafi verið við. „Hvers vegna er fólk sem talar svona ekki látið svara fyrir það hvað átt er við? Getur verið að þetta sé ekkert annað en yfirvarp til að réttlæta nýja og hærri skatta?“
Bjarni tjáir sig um málið á Facebook-síðu sinni. Hann segir að í fjármálaáætlun og fjáraukalögum, sem Alþingi hafi afgreitt á síðustu mánuðum, sé dregin upp skýr mynd af stöðunni. „Það helsta sem hefur breyst er að nú horfir til þess að skattar og gjöld skili a.m.k. 10 milljörðum meira til ríkisins en áður var áætlað á næsta ári. Á móti voru réttindi aldraðra og öryrkja aukin töluvert undir lok þingstarfa.“
Menn geti því ekki vísað í óvænta verri stöðu ríkisfjármála til að réttlæta skattahækkanir. „Reyndar er alveg magnað að þegar við erum við hámark hagsveiflunnar sé verið að tala um þörf á nýjum sköttum til að auka útgjöld verulega.“