Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að grípa til lagalegra aðgerða gegn bresku verslunarkeðjunni Iceland Foods. Ráðuneytið segir að breska keðjan hafi um árabil beitt sér gegn því að íslensk fyrirtæki geti auðkennt sig með upprunalandinu við markaðssetningu í Evrópu á vörum sínum og þjónustu.
Breska keðjan hefur einkarétt á ICELAND í öllum ríkjum Evrópusambandsins, samkvæmt ákvörðun þeirrar stofnunar innan ESB sem annast vörumerkjaskráningar. Íslensk stjórnvöld ætla að krefjast þess að einkaleyfið verði ógilt, enda sé það of víðtækt og komi í veg fyrir að íslenskir aðilar geti vísað til landfræðilegs uppruna síns.
Verslunarkeðjan hefur ítrekað kvartað til evrópskra yfirvalda yfir íslenskum aðilum sem nota orðið ICELAND sem hluta af vörumerki sínu, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Aðgerðir verslunarkeðjunnar hafa meðal annars bitnað á markaðsátakinu Inspired by Iceland, en undir þeim hatti hefur Ísland verið markaðssett sem spennandi áfangastaður fyrir ferðamenn.