Katrín Jakobsdóttir útilokar ekki samstarf við Sjálfstæðisflokkinn

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, vill ekki úti­loka að flokkur hennar myndi rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Hún ræddi við Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær, og segir nokkuð ljóst að ekki sé annar val­kostur í rík­is­stjórn­ar­við­ræðum fyrir flokk sinn. Enn hafi þó ekki hefði verið tekið ákvörðun um hvort að við hann yrði reynt. Ákvörðun um það yrði tekin í þing­flokki Vinstri grænna og í kjöl­farið myndi liggja fyrir hvort Katrín skili stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu sem hún hefur haft í viku. Smári McCart­hy, þing­maður Pírat­ar, úti­lokar hins vegar að Píratar myndi rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokkn­um. Þetta kemur fram í DV í dag.

Því virð­ist nokkuð ljóst að eina fimm flokka rík­is­stjórn­ar­mynstrið sem enn er inni í mynd­inni er það sem reynt var við fyrr í þess­ari viku án árang­urs. Ekki verður mögu­legt að skipta Við­reisn út fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í þeim við­ræð­um. Auk þess herma heim­ildir Kjarn­ans að ákveðið hafi verið innan Bjartrar fram­tíðar í gær­kvöldi að halda sam­starfi sínu við Við­reisn áfram. Þ.e. að fara ekki í rík­is­stjórn án þess flokks, en mikið hefur verið þrýst á Ótt­arr Proppé, for­mann flokks­ins, að hætta því til að geta orðið þátt­tak­andi í t.d. þriggja flokka rík­is­stjórn Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks.

Í DV er sagt að þing­flokkur Vinstri grænna legg­ist alfarið gegn því að mynda þriggja flokka rík­is­stjórn með bæði Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki. Ákveði Vinstri græn að fara í stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokkn­um, og banda­lag Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar heldur áfram, er ljóst að þá standi ein­ungis eftir rík­is­stjórn sem inni­héldi það banda­lag eða rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Sam­fylk­ing­ar.  

Auglýsing

Innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins er vilji til að taka aftur upp við­ræður við frjáls­lynda miðju­banda­lag Við­reisnar og Bjartrar fram­tíð­ar, en upp úr við­ræðum flokk­anna slitn­aði fyrr í mán­uð­in­um. Þeim vilja fylgir þó að þing­menn­irnir vilja fá Fram­sókn­ar­flokk­inn inn í við­ræð­urn­ar. Það hefur Bene­dikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisn­ar, úti­lokað aftur og aft­ur. Það komi ekki til greina að mynda rík­is­stjórn með bæði Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None