Viðreisn og Björt framtíð að ræða við Samfylkingu og Pírata

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, segir að hann og Óttarr Proppé hafi í gær rætt við leiðtoga Samfylkingarinnar og Pírata. Flokkarnir séu að fara yfir málefnaáherslur sínar.

Óttarr og Benedikt
Auglýsing

Ótt­arr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, og Bene­dikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisn­ar, ræddu við leið­toga Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata í gær. Þetta sagði Bene­dikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisn­ar, í við­tali í Harma­geddon á X-inu í morg­un. Þessir fjórir flokkar eru að ræða saman og ætla að sjá hvort það kemur eitt­hvað út úr því, og jafn­framt að sjá hvort Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn muni sætt­ast á Fram­sókn­ar­flokk­inn sem þriðja flokk­inn í sínum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­u­m. 

Hann segir flokk­ana fjóra hafa verið að reyna að finna út úr því hvað það var sem við­ræður flokk­anna og VG strönd­uðu á. Hug­myndir VG um kvóta­kerfið séu til að mynda lengst frá hug­myndum Við­reisn­ar. 

Allir þessir fjórir flokkar virð­ist hins vegar vera á þeirri skoðun að ekki hafi verið full­reynt með sam­starf þeirra. Bene­dikt sagði Við­reisn, Bjarta fram­tíð, Sam­fylk­ing­una og Pírata því hafa verið að fara yfir sínar mál­efna­á­hersl­ur. Þau hafi kom­ist að því að mik­ill sam­hljómur sé á milli þeirra fjög­urra í mörgum mál­u­m. 

Auglýsing

Því gæti svo farið að Vinstri græn gætu valið á milli þess að reyna fimm flokka stjórn á ný eða stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki. 

Bene­dikt sagði líka að hann og Ótt­arr hafi rætt við Sig­urð Inga Jóhanns­son, for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, í gær, en það hafi verið um þing­setn­ingu á Alþingi í næstu viku. 

Þá fór hann yfir stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður Við­reisn­ar, Bjartrar fram­tíðar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sagði að þar hefði verið búið að ná lend­ingu með mörg mál, til að mynda breyt­ingar á land­bún­að­ar­kerf­inu. Það hafi ekki verið komin lend­ing í Evr­ópu­sam­bands­mál­u­m. 

Líkt og fram hefur komið hafa Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn und­an­farna daga. Flokk­arnir tveir hafa þó ekki meiri­hluta á þingi og þurfa að minnsta kosti einn flokk til við­bótar til þess að geta myndað meiri­hluta­stjórn. Ýmsar hug­myndir hafa verið uppi um hvaða flokkur það væri, og kemur fram í Frétta­blað­inu í dag að reynt hafi verið að slíta sam­starfi Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar til þess að fá þann síð­ar­nefnda með í mögu­lega rík­is­stjórn. Það hafi ekki borið árang­ur. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None