Verðlag á Íslandi samkvæmt Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, hefur hækkað mikið frá 2015 og er nú 53% hærra en að meðaltali í Evrópusambandsríkjunum. Enn fremur er verðlag á Íslandi orðið sjö prósentum hærra en í Noregi, og aðeins fjórum prósentum frá því að verða dýrara en Sviss.
Á þetta bendir greiningardeild Arion banka í greiningu í morgun. Í greiningunni er fjallað um styrkingu krónunnar, sem nemur nú 17 prósentum frá byrjun ársins, og bent er á það sem dæmi að krónan hefur styrkst gagnvart evru í 135 vikur í röð. „Á suma mælikvarða má segja að Íslendingar séu ein allra ríkasta þjóð í heimi og krónan sé sterkasti gjaldmiðill í heimi. Stóra spurningin er því hvað það sé eitthvað sem getur staðist til lengri tíma.“
Þessi hraða gengisstyrking hefur mjög neikvæð áhrif á afkomu útflutningsfyrirtækja og stuðlar að mikilli aukningu innflutnings á sama tíma. Þá er jafnvægisraungengi líklega talsvert hærra vegna stórbættrar skuldastöðu við útlönd og annarrar hagstæðrar þróunar hér á landi. Arion banki telur að raungengi krónunnar sé í dag um 10 til 12 prósentum hærra en getur staðist til lengri tíma. Greiningardeildin veltir upp spurningunni hvort þjóðarbúskapurinn hafi efni á svona sterku gengi.
Ísland mjög dýrt í samanburðinum
Greiningardeildin fjallar um kenninguna um kaupmáttarjöfnuð, en samkvæmt henni eiga allar vörur að kosta það sama í öllum löndum á hverjum tíma. Bent er á að augljóslega haldi sú kenning ekki í sinni tærustu mynd, en ef leiðrétt er fyrir öðrum þáttum sem hafa áhrif á raungengi þá haldi þessi kenning yfir löng tímabil.
Því skoðar bankinn hlutfallslegt verðlag milli nokkurra landa miðað við mismunandi mælikvarða. Myndin hér að neðan á við um mælingar Eurostat á hlutfallslegu verðlagi.
Þegar málið er skoðað út frá mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var Sviss dýrasta land í heimi miðað við mismun á landsframleiðslu í dollurum á nafnvirði og leiðrétt fyrir kaupmáttarjöfnuði. „Frá miðju ári 2015 hefur íslenska krónan styrkst um 22% gagnvart svissneskum franka svo að ef við miðum við kaupmáttarleiðrétt gengi gjaldmiðla skv. IMF frá 2015, þá er Ísland nú komið upp fyrir Sviss og að líkindum orðið dýrasta land í heimi á þeim mælikvarða.“
Þá er einnig skoðað mat Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD), þar sem skoðuð er yfir- eða undirverðlagning landa og gjaldmiðla gagnvart Bandaríkjunum miðað við það hvert gengi gagnvart bandaríkjadal hefði þurft að vera svo að kaupmáttarjöfnuður myndi halda árið 2015. Þar er niðurstaðan einnig að Ísland sé dýrast, og krónan þyrfti að veikjast um 27% til að verðlag væri sambærilegt við Bandaríkin.