Segja rannsókn á aðkomu Hauck&Aufhäuser undarlega og byggja á dylgjum

Ólafur Ólafsson var einn þeirra sem leiddi S-hópinn.
Ólafur Ólafsson var einn þeirra sem leiddi S-hópinn.
Auglýsing

Lög­maður Ólafs Ólafs­sonar og Guð­mundar Hjalta­sonar segir að allt í kringum rann­sókn­ar­ferlið á aðkomu þýska bank­ans Hauck&Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á hlut í Bún­að­ar­bank­anum á sínum tíma sé „und­ar­legt, for­dæma­laust og byggt á órök­studdum dylgj­u­m.“ Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem lög­mað­ur­inn, Gísli Guðni Hall, sendi til fjöl­miðla í dag fyrir hönd umbjóð­enda sinna. Þeir hafa báðir verið kall­aðir fyrir sem vitni vegna rann­sókn­ar­inn­ar.

Til­kynn­ingin er send vegna frétta­flutn­ings um fram­lagn­ingu þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að frestur rann­­sókn­­ar­­nefndar um þátt­­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser í kaupum á 45,8 pró­sent eign­­ar­hlut rík­­is­ins í Bún­­að­­ar­­banka Íslands hf., verði fram­­lengd­­ur. Kjarn­inn greindi frá til­lög­unni í gær­kvöldi. Í skýrslu nefnd­­ar­innar um fram­­gang rann­­sókn­­ar­innar til þings­ins, sem skilað var 8. des­em­ber, er lagt til frestur til að skila skýrslu verði ekki fyrir 31. des­em­ber næst­kom­andi heldur frekar eins fljótt og verða má. Ástæðan fyrir frest­un­inni er vitni sem boð­uðu höfðu verði til skýrslu­töku 11. nóv­em­ber 2016 höfn­uðu því að mæta. Vitnin eru Ólafur Ólafs­son og Guð­mundur Hjalta­son. Í ljósi þessa óskaði nefndi eftir því að vitnin tvö yrðu kvödd fyrir hér­­aðs­­dóm sem vitni til þess að svara spurn­ingum um rann­­sókn­ina. 

Í grein­ar­gerð­inni segir að við­brögð vitn­anna við óskum rann­­sókn­­ar­­nefnd­­ar­innar um upp­­lýs­ingar hafa leitt til þess að tafir hafa orðið á störfum rann­­sókn­­ar­­nefnd­­ar­innar og fyr­ir­­sjá­an­­legt er að nefnd­inni mun ekki takast að ljúka rann­­sókn­inni innan þeirra tíma­­marka sem ákveðin eru í ályktun Alþing­­is. Henni átti áður að ljúka fyrir árs­lok.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu lög­manns mann­anna tveggja segir að Ólafur og Guð­mundur hafi nýtt sér rétt sinn til að mæta frekar fyrir dóm­ara en til skýrslu­gjafar hjá rann­sókn­ar­nefnd­inni, sam­kvæmt heim­ild­ar­á­kvæði í lögum um rann­sókn­ar­nefndir Alþing­is. Þeir hafi síðan mætt til hér­aðs­dóms sam­kvæmt boð­un­um. „Við fyr­ir­töku máls­ins lögðu þeir fram skrif­lega bók­un, þar sem þeir kröfð­ust úrskurðar dóm­ara um hvort lög­mætt til­efni hafi verið til skip­unar nefnd­ar­inn­ar.  Þeir benda m.a. á að eft­ir­lit Alþingis taki til fram­kvæmda­valds­ins, en ekki lög­skipta ein­stak­linga af einka­rétt­ar­legum toga.  Ekki fái heldur stað­ist að þegar mál sem varða ein­stak­linga eru fyrnd, og þar af leið­andi ekki skil­yrði til rann­sóknar þeirra sam­kvæmt almennum regl­um, að þá ákveði þing­menn, á póli­tískum for­send­um, að skipa rann­sókn­ar­nefnd í stað­inn.   Allt í kringum þetta rann­sókn­ar­ferli er und­ar­legt, for­dæma­laust og byggt á órök­studdum dylgj­u­m.  Nán­ari rök­semdir Ólafs og Guð­mundar hafa verið færðar fram fyrir hér­aðs­dómi og er úrskurðar að vænta fljót­lega.“

Bún­­­­að­­­­ar­­­­bank­inn var seldur til svo­­nefnds S-hóps­ 16. j­an­úar 2003. Hóp­ur­inn var leiddur af þeim Ólafi Ólafs­syni og Finni Ing­ólfs­syni, fyrr­ver­andi vara­for­manni og ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins. Aðrir lyk­il­menn í hópnum voru Krist­ján Lofts­son, oft­ast kenndur við Hval, Mar­geir Dan­í­els­son, Jón Helgi Guð­munds­son, oft­ast kenndur við Byko, og lög­mað­ur­inn Krist­inn Hall­gríms­son.

Aðkoma Hauck & Auf­hauser að kaup­unum var þannig að bank­inn keypti hlut í félag­inu Eglu, sem Ólafur átti einnig í, og var eitt þeirra sem keypti hlut í Bún­að­ar­bank­an­um. Guð­mundur var fram­kvæmda­stjóri Eglu. Rúmum tveimur árum eftir að Hauck & Auf­hauser keypti hlut í Eglu, og þar af leið­andi í Bún­að­ar­banka, var bank­inn búinn að selja hann allan til ann­arra aðila innan S-hóps­ins.

Um tveimur mán­uðum eftir að S-hóp­­­­ur­inn keypti Bún­­­­að­­­­ar­­­­bank­ann hófust við­ræður um að sam­eina hann og Kaup­­­­þing. Eftir að sú sam­ein­ing gekk í gegn varð sam­ein­aður banki stærsti banki lands­ins og hóp­­­­ur­inn sem stýrð­i honum gerði það þangað til að hann féll í októ­ber 2008, og skráði sig á spjöld ­sög­unnar sem eitt stærsta gjald­­­­þrot sem orðið hef­­­­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None