Már Guðmundsson
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur lækkað meg­in­vexti sína um 0,25 pró­sentu­stig og eru þeir nú fimm pró­sent. 

Í frétt frá nefnd­inni segir að ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar um lækkun vaxta sé tekin með hlið­sjón af síð­ustu spá Seðla­bank­ans að við­bættum nýjum upp­lýs­ing­um. „Gengi krón­unnar hefur hækkað um 1½% frá síð­asta fundi nefnd­ar­innar og er nú þegar orðið nokkru hærra en spáð var að það yrði að með­al­tali á næsta ári. Þá er sam­setn­ing hag­vaxtar hag­stæð­ari en spáð var í nóv­em­ber að því leyti að útflutn­ingur og atvinnu­vega­fjár­fest­ing vega þyngra. Hvort tveggja hefur áhrif á áhættu­mat nefnd­ar­inn­ar. Sem fyrr er tölu­verð óvissa um stefn­una í rík­is­fjár­mál­um, en aðhald hennar hefur slaknað nokkuð und­an­farin tvö ár og enn er óljóst hver efna­hags­stefna næstu rík­is­stjórnar verð­ur. Þá gætir áfram óróa á vinnu­mark­aði og óvissa er um áhrif næstu skrefa við losun fjár­magns­hafta. 

Kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga við verð­bólgu­mark­miðið virð­ist hafa styrkst og aðhald pen­inga­stefn­unnar að ein­hverju leyti auk­ist í gegnum hækkun gengis krón­unn­ar. Það gefur nefnd­inni svig­rúm til að lækka nafn­vexti nú. Eigi að síður kalla kröft­ugur vöxtur eft­ir­spurnar og ofan­greindir óvissu­þættir á var­kárni við ákvörðun vaxta. Aðhalds­stig pen­inga­stefn­unnar á kom­andi miss­erum mun ráð­ast af fram­vindu efna­hags­mála og annarri hag­stjórn.

Auglýsing

Vextir síð­ast lækk­aðir í ágúst

Pen­inga­­­stefn­u­­­nefnd Seðla­­­banka Íslands lækk­­aði vexti bank­ans síð­ast um 0,5 pró­­­sent­ur í lok ágúst. Meg­in­vextir bank­ans fóru þá úr 5,75 pró­­­sentum í 5,25 pró­­­sent. Meg­in­vextir bank­ans höfðu hald­ist óbreyttir frá því að þeir voru hækk­­­aðir í 5,75 pró­­­sent í nóv­­­em­ber 2015. 

Seðla­­­bank­inn hafði þá legið undir ámæli fyrir að lækka ekki vexti í ljósi þess að verð­­­bólga hafði nú verið undir verð­­­bólg­u­­­mark­miði hans síðan í febr­­­úar 2014. Hún er enn undir því mark­miði og mælist nú 2,1 pró­sent. 

Ákvörðun pen­inga­­­stefn­u­­­nefnd­­­ar­innar í ágúst hafði þau áhrif að breyt­i­­­legir vextir við­­­skipta­vina fjár­­­­­mála­­­stofn­anna lækk­­uðu og þau kjör sem þær bjóða nýjum lán­tak­end­­­um. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None