Íslendingar versla sífellt fleiri jólagjafir í erlendum vefverslunum

netið
Auglýsing

Íslend­ingar fengu 55 pró­sent fleiri send­ingar frá erlendum versl­unum frá í nóv­em­ber 2016 en í saman mán­uði í fyrra. Á sama tíma­bili fjölg­aði inn­lendum pakka­send­ingum um 35 pró­sent. Af þessu má ráða að íslenskir neyt­endur séu í meira mæli að kaupa jóla­gjaf­irnar sínar í gegnum vef­versl­anir á net­inu, sér­stak­lega erlend­ar, í stað þess að versla þær í íslenskum versl­un­um. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag. 

Í blað­inu er bend á að inn­lend fata­verslun hafi dreg­ist saman í októ­ber­mán­uði miðað við árið áður, þrátt fyrir að verð á fötum hafi lækkað um 5,9 pró­sent. Til við­bótar hefur átt sér stað umtals­verð kaup­mátt­ar­aukn­ing og tollar á fatn­aði og skóm verið felldir nið­ur. 

Net­verslun Íslend­inga er sífellt að aukast, jafnt inn­an­lands sem erlendis frá. Sam­kvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Sam­tök versl­unar og þjón­ustu og Póst­inn í febr­úar keyptu 73 pró­sent Íslend­ina vörur í gegnum netið tólf mán­uð­ina á und­an. Kjarn­inn greindi frá því í byrjun árs 2015 að 67 pró­sent lands­manna höfðu verslað á net­inu á árinu 2014 sam­an­borið við 57,6 pró­sent árið áður. 

Auglýsing

Þrátt fyrir afnám tolla og vöru­gjalda og mikla kaup­mátt­ar­aukn­ingu á Íslandi þá virð­ast Íslend­ingar samt sem áður velja að versla mikið erlend­is. Sú verslun fer ekki bara fram í gegnum net­ið. Margar af stærstu fata­versl­unum heims senda til að mynda ekki vörur beint til Íslands. H&M, sem mun opna versl­anir á Íslandi á næsta ári, er t.d. þegar með um fjórð­ungs­mark­aðs­hlut­deild í fata­kaupum Íslend­inga, sam­kvæmt tölum frá Meniga, þrátt fyrir að engin slík verslun sé rekin hér­lendis sem stend­ur. 

Í Frétta­blað­inu í dag er rætt við Andrés Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóra Sam­taka versl­unar og þjón­ustu, sem segir að það sé ekk­ert nýtt að íslensk verslun eigi í harðri sam­keppni við erlenda. Bæði sé net­verslun að aukast og svo sé það freist­ing að kaupa varn­ing erlendis frá þegar krónan hefur styrkst jafn mikið og raun ber vitni gagn­vart helstu erlendu gjald­miðl­u­m. 

Styrk­ing krón­unnar gagn­vart evru er um 16 pró­­sent á síð­­asta ári og gagn­vart Banda­­ríkja­­dal hefur hún verið rúm­­lega 14 pró­­sent. Mest hefur styrk­ingin verið gagn­vart pund­inu eða tæp­­lega 30 pró­­sent en eftir Brexit kosn­­ing­una í júní hefur pundið veikst veru­­lega gagn­vart helstu við­­skipta­­myntum heims­ins. Pundið kost­aði 206 krónur fyrir rúm­­lega ári en kostar nú rúm­lega 140 krón­­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None