Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, segir SDG-hópinn á RÚV hafa séð „ástæðu til að ryðjast inn í 100 ára afmælisveislu með dónaskap og framgöngu sem ég hef ekki kynnst oft af hálfu fréttamanna.“ Tilgangurinn virðist eingöngu hafa verið sá að ýta undir „illdeilur í Framsóknarflokknum í tilefni dagsins og búa til frétt um að ég hafi ekki setið nógu mikið í Alþingishúsinu undanfarna daga.“ Hann segir hópinn, sem ekki er skilgreindur nánar, haldinn þráhyggju sem virðist vera að ágerast frekar en hitt. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu sem Sigmundur Davíð birti á Facebook-síðu sinni í dag.
Ástæða stöðuuppfærslunnar er viðtal sem tekið var á hátíð vegna 100 ára afmælis Framsóknarflokksins í gær og birt var í heild sinni á vef RÚV fyrr í dag. Þar sést Sigmundur Davíð bregðast illa við þegar Sunna Valgerðardóttir, fréttamaður RÚV, spurði hann um ástæður þess að hann hafi ekki mætt í vinnuna það sem af er þingi, en Sigmundur Davíð er eini þingmaður landsins sem hefur ekki mætt á þingfundi á þessu kjörtímabili. Hann ásakaði RÚV og fréttamanninn um að vera með reiði í sinn garð, sleit svo viðtalinu og gekk í burtu.
Á Alþingi hafa verið fjórir þingfundardagar eftir þingsetningu 6. desember (sá lengsti rúmir fjórir klukkutímar). Þar af einn dagur eftir að þingmenn Framsóknar fengu skrifstofur.
Það hefur ekki tekist að mynda ríkisstjórn, það er ekki hægt að skipa í nefndir nema til bráðabirgða og helsta viðfangsefni þingsins er munaðarlaust fjárlagafrumvarp samið af embættismönnum.
Ríkisútvarpið hefur hins vegar mestar áhyggjur af því að ég hafi ekki setið í þingsalnum þessa fjóra daga. Eftir því sem ég kemst næst er þetta í fyrsta skipti sem stofnunin sér ástæðu til að gera slíka frétt. Þó hef ég séð ótal dæmi um að þingmenn hafi ekki aðeins sleppt því að sitja í þingsal heldur horfið vikum saman án þess þó að vera saknað.
Ég get hins vegar vonand dregið úr áhyggjum á RÚV-AK með því að upplýsa um að ég hef fylgst vel með gangi mála á þinginu þessa skrýtnu daga en um leið náð að sinna öðrum verkefnum sem falla undir starf þingmanns eins og síðar mun koma í ljós.“