Sigmundur segir þráhyggju SDG-hópsins á RÚV vera að ágerast

skuldaniurfelling_15580940647_o.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir SDG-hóp­inn á RÚV hafa séð „ástæðu til að ryðj­ast inn í 100 ára afmæl­is­veislu með dóna­skap og fram­göngu sem ég hef ekki kynnst oft af hálfu frétta­manna.“ Til­gang­ur­inn virð­ist ein­göngu hafa verið sá að ýta undir „ill­deilur í Fram­sókn­ar­flokknum í til­efni dags­ins og búa til frétt um að ég hafi ekki setið nógu mikið í Alþing­is­hús­inu und­an­farna daga.“ Hann segir hóp­inn, sem ekki er skil­greindur nán­ar, hald­inn þrá­hyggju sem virð­ist vera að áger­ast frekar en hitt. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Sig­mundur Davíð birti á Face­book-­síðu sinni í dag.

Ástæða stöðu­upp­færsl­unnar er við­tal sem tekið var á hátíð vegna 100 ára afmælis Fram­sókn­ar­flokks­ins í gær og birt var í heild sinni á vef RÚV fyrr í dag. Þar sést Sig­mundur Dav­íð bregð­ast illa við þegar Sunna Val­gerð­ar­dótt­ir, frétta­­maður RÚV, spurði hann um ástæður þess að hann hafi ekki mætt í vinn­una það sem af er þingi, en Sig­­mundur Davíð er eini þing­­maður lands­ins sem hefur ekki mætt á þing­fundi á þessu kjör­­tíma­bili. Hann ásak­aði RÚV og frétta­­mann­inn um að vera með reiði í sinn garð, sleit svo við­tal­inu og gekk í burt­u. 

Auglýsing
Í stöðu­upp­færsl­unni segir Sig­mundur Davíð að þing­menn vinni við fleira en að sitja í þing­sal. „Sem betur fer því að jafn­aði sitja tveir til þrír menn í saln­um. Þing­menn eiga að fylgj­ast með þing­fundum eins og kostur er en einnig að hitta fólk, kynna sér mik­il­væg mál, sinna flokknum sín­um, kjós­endum og öðrum lands­mönn­um. 



Á Alþingi hafa verið fjórir þing­fund­ar­dagar eftir þing­setn­ingu 6. des­em­ber (sá lengsti rúmir fjórir klukku­tímar). Þar af einn dagur eftir að þing­menn Fram­sóknar fengu skrif­stof­ur. 



Það hefur ekki tek­ist að mynda rík­is­stjórn, það er ekki hægt að skipa í nefndir nema til bráða­birgða og helsta við­fangs­efni þings­ins er mun­að­ar­laust fjár­laga­frum­varp samið af emb­ætt­is­mönn­um.

Rík­is­út­varpið hefur hins vegar mestar áhyggjur af því að ég hafi ekki setið í þingsalnum þessa fjóra daga. Eftir því sem ég kemst næst er þetta í fyrsta skipti sem stofn­unin sér ástæðu til að gera slíka frétt. Þó hef ég séð ótal dæmi um að þing­menn hafi ekki aðeins sleppt því að sitja í þing­sal heldur horfið vikum saman án þess þó að vera sakn­að.

Ég get hins vegar von­and dregið úr áhyggjum á RÚV-AK með því að upp­lýsa um að ég hef fylgst vel með gangi mála á þing­inu þessa skrýtnu daga en um leið náð að sinna öðrum verk­efnum sem falla undir starf þing­manns eins og síðar mun koma í ljós.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None