ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur ákveðið að vísa tveimur málum gegn Íslandi til EFTA dómstólsins. Málin varða innflutningstakmarkanir á ferskum kjötvörum og vörum úr eggjum og mjólk frá öðrum EES ríkjum til Íslands.
ESA segir að innflutningstakmarkanir á Íslandi leiði af sér ónauðsynlegar og ástæðulausar viðskiptahindranir. „Þetta snýr að aðgengi að innri markaðnum og grunnreglum um gagnkvæmni í viðskiptum. Sennilega þætti ýmsum súrt í broti ef önnur EES-ríki beittu viðlíka viðskiptahindrunum gagnvart innflutningi íslenskrar matvöru sem sætir heilbrigðiseftirliti á Íslandi,“ segir Helga Jónsdóttir, stjórnarmaður hjá ESA, í tilkynningu til fjölmiðla.
Aðalmarkmið reglna um flutning matvöru á EES svæðinu sé að stuðla að og bæta heilbrigðiseftirlit í upprunalandi vöru til að tryggja öryggi bæði manna og dýra, en á sama tíma sé eftirlit á viðtökustað minnkað til að auka skilvirkni og auðvelda viðskipti.
Íslensk löggjöf er nú þannig að sækja þarf um leyfi fyrir innflutningi á kjötvörum, vörum úr hráum eggjum og ógerilsneyddri mjólk. Þá ber innflytjendum að framvísa gögnum sem sýna m.a. fram á að ferskt kjöt og aðrar kjötvörur hafi verið geymdar í frysti við -18°C í 30 daga áður en heimilt er að selja vöruna. Löggjöfinni fylgir umfangsmikið eftirlit og krafa er gerð um að innflytjendur leggi fram margvísleg gögn til Matvælastofnunar, sem gengur þvert á markmið EES reglanna.
Vísun máls til EFTA-dómstólsins er lokaskrefið í formlegu samningsbrotamáli ESA á hendur EFTA-ríki. Áður hafa íslensk stjórnvöld verið upplýst um afstöðu stofnunarinnar og veittur kostur á að koma röksemdum sínum á framfæri sem og að ljúka málinu með því að innleiða viðeigandi löggjöf innan gildandi tímamarka.