Ráðherrar fá ráðleggingar vegna hættumerkja í hagkerfinu

7DM_9988_raw_1807.JPG
Auglýsing

Ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál hefur ákveðið að fela sér­fræð­ingum úr for­sæt­is­ráðu­neyti og fjár­mála­ráðu­neyti að greina stöð­una í íslensku efna­hags­lífi með til­liti til styrk­ingar krón­unnar og vax­andi hættu á ójafn­vægi í hag­kerf­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­in­u. 

Sér­fræð­ingar ráðu­neyt­anna eiga að koma með til­lögur til að stemma stigu við þenslu­hættu og þeirri hættu sem steðjar að sam­keppn­is­hæfni þjóð­ar­bús­ins, segir í til­kynn­ing­unni. Þeir munu á næstu vikum funda með hags­muna­að­ilum til að varpa sem bestu ljósi á aðstæður og fá þeirra hug­myndir að úrbót­um. Til­lög­urnar eiga að nýt­ast ráð­herra­nefnd­inni meðal ann­ars í umræðum um sam­still­ingu hag­stjórnar í Þjóð­hags­ráð­i. 

Sig­urður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra, Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra sitja í ráð­herra­nefnd­inni um efna­hags­mál. 

Auglýsing

Í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu kemur fram að styrk­ing krón­unnar sé til marks um bætta stöðu Íslands. „Mikil spurn er eftir íslenskum vörum og þjón­ustu sem styrkir gengið og gerir Ísland að dýr­ari kosti. Þessi staða kallar á gam­al­kunnar hættur og krefst mik­ils aga í hag­stjórn. Styrk­ing krón­unnar og veru­leg hækkun launa setur útflutn­ings­at­vinnu­vegi í vanda og rýrir sam­keppn­is­hæfni hag­kerf­is­ins. Hin jákvæðu skil­yrði sem leika nú umefna­hags­lífið geta því fljótt snú­ist upp í anhverfu sína. Þetta er mik­il­vægt að greina vel þegar líður að næstu skrefum í áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta.“ 

Gengið styrkst gríð­ar­lega 

Gengi krón­unnar hefur styrkst mikið að und­an­­förnu gagn­vart helstu við­­skipta­­myntum heims­ins. Gengi krón­unnar gagn­vart evr­­unni hefur styrkst um ríf­­lega 17 pró­­sent á þessu ári, og um fjögur pró­­sent á und­an­­förnum mán­uði. Evran kostar nú 118,5 krónur en fyrir rúm­­lega ári kost­aði hún 150 krónur og um mitt ár 2014 154 krón­­ur. 

Leita þarf aftur til fyrri­hluta árs 2008 til að finna sterk­­ari stöðu krón­unnar gagn­vart evru heldur en nú er. Í júlí 2008 kost­aði evran 129 krónur en í febr­­úar kost­aði hún 98 krón­­ur. Eftir fall krón­unnar í mar­s­mán­uði 2008 var evran komin í 122 krónur og veikt­ist krónan svo jafnt og þétt fram að stjórn­­­lausu falli hennar eftir hrun bank­anna, í októ­ber 2008, og setn­ingu fjár­­­magns­hafta með lögum í nóv­­em­ber sama ár. Þá kost­aði krónan 182 krón­­ur.

Gengi krón­unnar gagn­vart Banda­­ríkja­­dal hefur einnig styrkst nokkuð en hann kostar nú 114 krón­­ur, en fyrir ári kost­aði hann 136 krón­­ur.

Kjarn­inn fjall­aði nýlega ítar­lega um stöð­una í íslensku hag­kerfi, og lesa má þá frétta­skýr­ingu hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None