Áfram hægt að vísa fólki frá öruggum löndum úr landi

innanríkisráðuneytið
Auglýsing

Útlend­inga­stofnun mun fram á mitt næsta ár geta vísað hluta hæl­is­leit­enda úr landi þrátt fyrir að þeir kæri úrskurði stofn­un­ar­innar til kæru­nefndar útlend­inga­mála, sam­kvæmt frum­varpi sem Þór­unn Egils­dótt­ir, for­maður alls­herj­ar- og mennta­mála­nefndar Alþing­is, hefur lagt fram á Alþing­i. 

Þetta á við þegar Útlend­inga­stofnun hefur metið umsóknir fólks ber­sýni­lega til­hæfu­lausar og það kemur frá ríki sem er á lista stofn­un­ar­innar yfir örugg ríki. Við­kom­andi munu áfram geta kært neit­anir á hæli til kæru­nefndar útlend­inga­mála, en gæti þá þurft að gera það að utan. 

Alþingi sam­þykkti lög til bráða­birgða vegna þessa í októ­ber síð­ast­liðn­um, og átti ákvæðið að gilda út þetta ár, en tekið er á þessum málum í nýjum útlend­inga­lögum sem eiga að taka gildi um ára­mót­in. Nú er lagt til að bráða­birgða­á­kvæðið verði fram­lengt fram til 1. júlí og á móti frest­ist sam­bæri­leg ákvæði í útlend­inga­lög­un­um, sem þykja óskýr. Þá gef­ist nægur tími til þess að lag­færa ákvæð­ið. 

Auglýsing

„Mik­ill fjöldi umsókna um alþjóð­lega vernd hefur borist á árinu og er útlit fyrir að þær verði yfir 1.100 á árinu 2016. Meiri hluti umsókna er frá öruggum upp­runa­ríkj­um, aðal­lega Makedóníu og Alban­íu. Aldrei fyrr hafa svo margir sótt um vernd hér á landi, en allt árið 2015 voru umsækj­endur 354, árið 2014 voru þeir 175 og 172 árið 2013. Það sem af er ári hefur öllum slíkum umsóknum verið synj­að. Þrátt fyrir það virð­ist ekk­ert lát á komum ein­stak­linga frá öruggum ríkj­um, en í októ­ber og nóv­em­ber 2016 lögðu sam­an­lagt 456 manns fram umsókn um alþjóð­lega vernd hér á landi, þar af voru 79% frá öruggum ríkj­u­m,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­in­u. 

Þessi þróun hafi aukið álag á hæl­is­kerfið mjög, og því hafi verið leitað ýmissa úrræða til þess að hraða afgreiðslu umsókna um vernd eins og hægt sé. Þetta ákvæði um að kæra fresti ekki rétt­ar­á­hrifum ákvarð­ana Útlend­inga­stofn­unar um að útlend­ingur skuli yfir­gefa landið þegar stofn­unin telur umsókn­ina til­hæfu­lausa og við­kom­andi komi frá öruggu rík­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None