Hörður Ægisson hefur verið ráðinn ritstjóri Markaðarins, viðskiptarits Fréttablaðsins. Hann staðfesti þetta í samtali við Kjarnann í dag.
Hörður hefur undanfarin tvö ár verið verið viðskiptaritstjóri og ritstjóri á DV, en hætti störfum þar í dag. Haraldur Guðmundsson blaðamaður á DV flytur sig einnig um set og fer með Herði á Markaðinn, en hann starfaði þar áður en hann fór á DV fyrir tveimur árum. Þeir munu hefja störf á 365 miðlum í næstu viku.
Hafliði Helgason mun samhliða þessu láta af störfum sem ritstjóri Markaðarins, en hann var ráðinn sem ritstjóri hans í lok ágúst síðastliðins.
Auglýsing