Segir þjóðaratkvæði ekki í hag eða anda Sjálfstæðisflokksins

Bjarni
Auglýsing

Það væri ekki í hag Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ekki í anda stefnu flokks­ins ef hann myndi sam­þykkja að farið verði í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Evr­ópu­sam­band­ið. Þetta segir Gunn­laugur Snær Ólafs­son, for­maður utan­rík­is­mála­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins við mbl.is. Afstaða flokks­manna og kjós­enda hans „hefur alfarið verið á þá leið að þeir hafa engan áhuga á þessu.“ 

Í morgun var sagt frá því í Frétta­blað­inu að búið væri að ná sam­komu­lagi um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um ESB milli Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíð­ar. Slík þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla myndi fara fram á kjör­tíma­bil­inu. Greint hefur verið frá því að til standi að láta þingið taka ákvörðun um þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una og að það verði sett í stjórn­ar­sátt­mála að vænt­an­legir rík­is­stjórn­ar­flokkar gengju óbundnir til þeirrar ákvörð­un­ar. 

Bæði Bene­dikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisn­ar, og Ótt­arr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, hafa sagt í dag að ekki sé allt rétt sem komið hafi fram í frétt­um. „Mér sýn­ist að blöðin hafi verið dug­legri um helg­ina að fá fréttir heldur en ég,“ sagði Ótt­arr á RÚV í morgun aðspurður hvort sam­komu­lag hefði náðst um að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla yrði haldin um aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­band­ið. Bene­dikt sagði við mbl.is í morgun að það væri „margt nýtt sem maður lærir með því að lesa blöð­in.“ 

Auglýsing

Gunn­laugur Snær segir að ef þessar fréttir skyldu vera réttar hafi það í för með sér vanda­mál, ekki bara fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn heldur líka mögu­legt rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Það hafi verið ályktað skýrt um málið á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins að hann myndi ein­göngu krefj­ast þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu ef það ætti að sækja um aðild að nýju. „Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn ætl­aði ekki að hafa frum­­kvæði að því að sækja um að nýju því hann er and­snú­inn því að ganga í Evr­­ópu­­sam­­band­ið. Þetta er ákveðin mót­­sögn ef slík at­­kvæða­greiðsla ætti sér stað. Segj­um sem svo að það yrði kosið snemma á kjör­­tíma­bil­inu eða á því miðju; ætl­­ar for­ysta Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins út í kosn­­inga­bar­áttu gegn því að þetta verði sam­þykkt á meðan for­yst­u­­menn ann­arra rík­­is­­stjórn­­­ar­­flokka væru hugs­an­­lega að berj­­ast með álykt­un­inn­i?“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None