olíuborpallur
Auglýsing

Ekki þykir ástæða til þess að halda áfram rann­sóknum á hluta Dreka­svæð­is­ins, og hafa sér­leyf­is­hafar þar því gefið eftir sér­leyfi sitt til rann­sókna á svæð­inu. Orku­stofnun hefur sam­þykkt að leyfið sé gefið eft­ir. 

Um er að ræða minna sér­leyfið til rann­sókna á olíu og gasi á Dreka­svæð­inu, sem er í íslenskri lög­sögu. Það var kanadíska fyr­ir­tækið Ithaca Petr­o­leum ehf. sem fékk sér­leyfið ásamt sam­starfs­að­il­unum Kol­vetni ehf og Petoro Iceland ehf. Leyfið var gefið út fyrir fjórum árum síð­an. Ákvörðun um fram­hald leyf­is­ins varð að taka nú í jan­úar sam­kvæmt samn­ing­um. 

Í til­kynn­ingu frá Orku­stofnun kemur fram að safnað hafi verið 1.000 kíló­metrum af end­ur­kasts­gögnum á svæð­inu síð­ast­liðið sum­ar, en túlkun gagn­anna hafi leitt í ljós að ekki væri ástæða til að halda áfram rann­sókn­um. „Jarð­fræði­rann­sóknir byggðar á nýju end­ur­kasts­gögn­unum benda til þess að líkur á að finna olíu og/eða gas á afmörk­uðu svæði sér­leyf­is­svæðis sem rann­sakað var, gefi ekki til­efni til að takast á við næsta áfanga rann­sókn­ar­á­ætl­unar sér­leyf­is­ins. Nið­ur­stöður túlk­unar Ithaca Petr­o­leum á gögn­unum leiðir líkur að því að á svæði sem leyf­is­haf­arnir töldu fýsi­legt, væri móð­ur­berg kol­vetna á dýpri jarð­lögum en fyrstu vís­bend­ingar gáfu til kynna,“ segir í til­kynn­ingu Orku­stofn­un­ar. 

Auglýsing

Orku­stofnun segir að jarð­fræði­að­stæður á þessu leyf­is­svæði séu gjör­ó­líkar aðstæð­unum á hinu leyf­is­svæð­inu sem enn er rann­sak­að. Það er stærra svæði og er CNOOC International rekstr­ar­að­il­inn þar. Rann­sóknir á því svæði halda að minnsta kosti áfram í ár í við­bót. 

Orku­stofnun veitti þrjú sér­leyfi til að rann­saka og vinna kol­vetni á Dreka­svæð­inu árin 2013 og 2014. Nú hefur tveimur af þremur sér­leyfum verið skilað inn til Orku­stofn­un­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None