Stjórnarsáttmáli: Evrópumál fara til þingsins undir lok kjörtímabils

Bæði Björt Framtíð og Viðreisn eru með viðræður um aðild að Evrópusambandinu ofarlega á baugi í sínum stefnum. Fyrsta ríkisstjórn flokkanna mun ekki styðja þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður.
Bæði Björt Framtíð og Viðreisn eru með viðræður um aðild að Evrópusambandinu ofarlega á baugi í sínum stefnum. Fyrsta ríkisstjórn flokkanna mun ekki styðja þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður.
Auglýsing

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu.

Þetta er í sam­ræmi við það sem Kjarn­inn greindi frá í síð­ustu viku, að Evr­ópu­mál verði afgreidd með þeim hætti að þings­á­lykt­un­ar­til­laga verður lögð fram á kjör­tíma­bil­inu um hvort ráð­ast eigi í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald við­ræðna Íslands við sam­band­ið. Rík­is­stjórnin mun ekki bera ábyrgð á þeirri til­lögu og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem er and­vígur aðild, mun geta barist gegn þeirri nið­ur­stöðu. Það mun Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn einnig gera. Ljóst er að þing­menn Sam­fylk­ing­ar, Bjartrar fram­tíð­ar, Við­reisnar og Pírata munu kjósa með til­lög­unni. Það mun því ráð­ast af afstöðu Vinstri grænna hvort slík þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla fari fram eður ei.

Kjarn­inn greindi einnig frá því í síð­ustu viku að stóra mála­miðl­unin sem hefur verið gerð í við­ræðum er í sjáv­ar­út­vegs­mál­um. Heim­ildir Kjarn­ans herma að Við­reisn hafi gefið eftir kröfu um upp­boð á afla­heim­ildum til þess að ná saman við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þess í stað verður sam­þykkt að búa til ferli sem eigi að miða að breyt­ingum innan ákveð­ins tímara­mma, en kerf­is­breyt­ing á sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu sjálfu verður ekki hluti af stjórn­ar­sátt­mála.

Auglýsing
Fyrir liggur hins vegar að Við­reisn fái þrjú ráðu­neyti, þar á meðal sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­ið. Lík­leg­ast er talið að Þor­steinn Víglúnds­son setj­ist í það. Bene­dikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisn­ar, verður fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir þá vænt­an­lega félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Ótt­arr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, verður heil­brigð­is­ráð­herra og Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær fimm ráðu­neyti. Þar verður Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, for­sæt­is­ráð­herra, og Ólöf Nor­dal, vara­for­maður hans, inn­an­rík­is­ráð­herra. Auk þess fær flokk­ur­inn mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­ið, utanrík­is­ráðu­neytið og iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neytið í sinn hlut. Gert er ráð fyrir þvi að ein­hverjir mála­flokkar flytj­ist til, og þá sér­stak­lega úr inn­an­rík­is­ráðu­neyti yfir til iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None