Sigmundur Davíð gæti ekki hugsað sér verri ríkisstjórn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að hann gæti ekki hugsað sér verri rík­is­stjórn en þá sem nú hefur verið sam­þykkt að mynda og er ekki viss um að hún nái að sitja út kjör­tíma­bil­ið. Hann seg­ist hafa veru­lega áhyggjur af því í hvað stefnir þar sem sam­setn­ing rík­is­stjórn­ar­inn­ar; hún sam­anstendur af Sjálf­stæð­is­flokki, Við­reisn og Bjartri fram­tíð, sé sér­lega óheppi­leg. „Við­reisn varð til upp úr Áfram-Ices­ave sam­tök­unum og JÁ-ESB hópn­um, sem að miklu leyti voru reyndar sömu hóp­arn­ir. Flokknum er haldið úti af fólki sem hefur verið áhrifa­mikið í við­skiptum á Íslandi und­an­farin ár en er mjög langt frá því að vera á sömu línu og Fram­sókn varð­andi for­gangs­röð­un, t.d. varð­andi skulda­mál almenn­ings, verð­trygg­ingu og viður­eign við erlenda kröfu­hafa. Reyndar skil­greindi flokk­ur­inn sig sem and-Fram­sókn­ar­flokk, sér­stak­lega með vísan til Fram­sóknar áranna 2009-16. Björt fram­tíð virð­ist í flestum málum vera á svip­uðum slóðum og Við­reisn enda flokk­arnir búnir að koma fram sem einn eftir kosn­ing­ar.“ Þetta kemur fram í við­tali við Sig­mund Davíð á Eyj­unni. 

For­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi, sem þurfti að segja af sér emb­ætti 5. apríl síð­ast­lið­inn og tap­aði for­manns­kosn­ingu í Fram­sókn­ar­flokknum í byrjun októ­ber, segir að hann ótt­ist enn fremur að stjórn­ar­mynstrið muni ekki hafa góð áhrif á Sjálf­stæð­is­flokk­inn. „Flokk­ur­inn [Við­reisn] er langt til hægri við Sjálf­stæð­is­flokk­inn á mörgum svið­um, og það á öllum röngu svið­un­um. Áhrifin geta orðið ískyggi­leg. Við stjórn­völ­inn verður fólk sem heldur að frjáls­lyndi snú­ist aðal­lega um að tvær til þrjár versl­ana­keðjur fái að selja sem mest af erlendu kjöti og brenni­víni.

Auglýsing

Sig­mundur Davíð hefur sér­stak­lega áhyggjur af því að skemmdir verði unnar á ýmsum grunn­stoðum sam­fé­lags­ins utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. „Nú hef ég hrein­lega áhyggjur af því að und­ir­stöðu­at­vinnu­vegir þjóð­ar­innar og byggðir lands­ins séu í veru­legri hættu. Það hefur ekki farið fram hjá neinum hvernig Við­reisn og Björt fram­tíð hafa talað um þau mál og mér sýn­ist að þar eigi að láta til skarar skríða.

Á sama tíma bíður upp­stokkun fjár­mála­kerf­is­ins og sala gígantískra verð­mæta sem rík­is­stjórn Fram­sókn­ar- og Sjálf­stæð­is­flokks náði að færa til rík­is­ins frá kröfu­höf­um. Ég gæti ekki hugsað mér verri rík­is­stjórn til að halda utan um þau mál. Þetta verða áfram áhuga­verðir tímar í íslenskum stjórn­mál­u­m.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None