Ríflega milljarður króna er í Framkvæmdasjóði ferðamannastaða þrátt fyrir að búið sé að úthluta þessum fjármunum til verkefna. Þetta kemur fram í tölum sem Ferðamálastofa tók saman um sjóðinn, eftir síðustu úthlutun úr honum.
Úthlutað hefur verið tíu sinnum úr sjóðnum frá því að honum var komið á laggirnar árið 2012. Samtals hefur rúmlega 2,8 milljörðum króna verið úthlutað úr sjóðnum, en ríflega 1,7 milljarður króna hefur verið greiddur út úr sjóðnum. Það þýðir sem fyrr segir að eftirstöðvarnar eru um milljarður króna.
514 verkefni hafa fengið samþykkta fjármögnun úr sjóðnum frá upphafi, en færri verkefnum er lokið en ólokið. 243 verkefni hafa klárast en 271 verkefnum er enn ólokið.
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri segir í svari við fyrirspurn Kjarnans að ýmsar ástæður séu fyrir því að verkefni hafi ekki gengið eftir. Meðal þeirra megi nefna erfiðleika við að fá verktaka til að vinna verkin. Miklar framkvæmdir út um allt land hafi skapað flöskuhálsa í mönnun framkvæmda. Þá þurfi samþykki landeigenda sem fæst ekki alltaf, skipulagsmál geta stöðvað verkefni og framvindu- og lokaskýrslum er ekki skilað til sjóðsins. Tafir geti orðið vegna veðurfars og áætlaður framkvæmdatími sé of stuttur.
Síðast var auglýst eftir umsóknum í sjóðinn í október síðastliðnum. Stjórn Framkvæmdasjóðsins fundar þessa dagana reglulega til að fara yfir umsóknir, og búist er við að þeirri vinnu ljúki í febrúar, samkvæmt svörum frá Ferðamálastofu.
Gengur hægt að úthluta
Ákveðið var að lækka framlagið til framkvæmdasjóðsins um 600 milljónir króna milli umræðna um fjárlagafrumvarpið á Alþingi fyrir jól. Ástæðan er sú að það hefur tekið mun lengri tíma að ráðstafa fé sjóðsins en gert hafði verið ráð fyrir. Kjarninn hefur áður greint frá því að miklir fjármunir hafi legið óhreyfðir í Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
Í fjárlögum síðasta árs var ákveðið að auka framlögin um 517 milljónir króna þrátt fyrir að þá hefðu 1,2 milljarður króna legið óhreyfður í sjóðnum um langt skeið. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið greindi frá því í september árið 2015 að við undirbúning fjárlaga fyrir 2016 hefði komið í ljós að „umtalsverðir fjármunir“ eða 1,2 milljarðar króna, lægju enn óhreyfðir í sjóðnum. Þessum fjármunum hafði ekki enn verið ráðstafað í þau verkefni sem þeim hafði verið úthlutað til. Ýmsar ástæður væru fyrir því en ljóst væri að bæta þyrfti úr skipulagi og framkvæmd.
Gera ráð fyrir 1,2 milljarða tekjuaukningu
Gistináttaskattur var þrefaldaður af Alþingi fyrir jól, en breytingin tekur gildi þann 1. september næstkomandi. Meirihluti skattsins fer lögum samkvæmt í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.
Frá og með 1. september verður gistináttaskatturinn 300 krónur á hverja selda gistináttaeiningu í stað 100 króna nú. Samkvæmt frumvarpi um ýmsar forsendur fjárlagafrumvarpsins var gert ráð fyrir því að tekjur ríkisins aukist um 300 milljónir króna á þessu ári vegna breytingarinnar en um 1,2 milljarða króna á því næsta, að meðtöldum hliðaráhrifum á virðisaukaskatt.
Samkvæmt núgildandi lögum er það þannig að 3/5 hlutar þeirra tekna sem ríkið fær af gistináttaskatti fara í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Sjóðurinn mun því að óbreyttu fá talsvert hærri framlög á komandi árum með hækkun skattsins. Það kemur til viðbótar þess að meira hefur innheimst af gistináttaskatti með mikilli fjölgun ferðamanna til landsins, og til að mynda fær sjóðurinn auka 45 milljónir króna af fjáraukalögum síðasta árs vegna þess að meira innheimtist af skattinum en gert var ráð fyrir.
Sveitarfélögin vilja hluta en ferðaþjónustan ekki
Samband íslenskra sveitarfélaga vill að sveitarfélög fái helming eða mögulega tvo þriðju hluta af gistináttaskatti vegna þeirra ferðamanna sem gista innan þeirra marka, og að þær tekjur renni til þess að byggja upp innviði ferðaþjónustunnar í því sveitarfélagi. Þetta kom meðal annars fram í umsögn sambandsins um ýmsar forsendur fjárlagafrumvarpsins.
Samtök ferðaþjónustunnar eru á annarri skoðun, og fóru fram á það í sinni umsögn um sama mál að skatturinn yrði látinn renna óskiptur inn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. „Fyrirtæki, einstaklingar, stofnanir eða sveitafélög geta svo sótt um í sjóðinn til verkefna til uppbyggingar enda eru fjármunirnir ætlaðir til uppbyggingar ferðamannastaða. Með þessu er stjórnsýslan gagnsæ og skilvirk,“ sögðu samtökin í sinni umsögn.
Hvorug umsögnin var tekin til greina þegar málið var afgreitt frá Alþingi fyrir jólin.