Sveinn Andri Sveinsson hrl. skiptastjóri EK 1923 ehf., sem áður hét Eggert Kristjánsson Hf. heildverzlun, hefur kært Skúla Gunnar Sigfússon, oft kenndan við Subway, og Guðmund Hjaltason, til embættis Héraðssaksóknara vegna meintra brota þeirra í tengslum við gjörninga EK og félagsins Sjöstarnan. Eru þeir kærðir fyrir auðgunarbrot, skjalabrot og ranga skýrslugjöf, að því er segir í kærunni sem er frá 9. janúar síðastliðnum.
Skúli var eigandi í báðum félögum en Guðmundur var framkvæmdastjóri Sjöstjörnunnar, samkvæmt kæru, þegar meint brot áttu sér stað.
Í kærunni, sem Kjarninn hefur undir höndum, er þeim lýst þannig, að þeir hafi með „ólögmætum hætti tileinkað sér fyrir hönd Sjöstjörnunnar ehf. 21,3 milljónir króna með því að láta starfsmann Íslandsbanka millifæra þann 15. Mars 2016 millifæra þá fjárhæð af bundinni bankabók í eigu EK inn á reikning Sjöstjörnunnar,“ eins og orðrétt segir í kærunni. Með þessum hætti eru þeir sakaðir um að hafa haldið eftir fjármunum með ótilhlýðilegum hætti frá öðrum kröfuhöfum þrátt fyrir að gjaldþrot félagsins væri yfirvofandi.
Vísað er meðal annars til lagaákvæða um fjársvik og skjalafals, en tekið fram að það sé ákæruvaldsins að meta heimfærslu meintra brota.
Kæran er birt hér í heild sinni, en í lok hennar er gerð krafa um refsingu og að hugsanlega geti komið til einkaréttarlegrar kröfu á hendur þeim.