Páll Rafnar Þorsteinsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Hann sat í þriðja sæti á framboðslista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður í síðustu kosningum. Hann er með doktorspróf í heimspeki frá Cambridge háskóla og fjallaði lokaritgerð hans um lagahugtakið (nomos) í stjórnspeki Aristótelesar. Hann er auk þess með meistaragráðu í stjórnmálaheimspeki frá London School of Economics og BA gráðu í heimspeki og grísku frá Háskóla Íslands.Páll er sonur Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins.
Páll Rafnar mun láta af störfum sem forseti Félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst þar sem hann hefur starfað undanfarin ár við kennslu og stjórnun. Páll starfaði þar áður sem ráðgjafi hjá almannatengslafyrirtækinu KOM. Þá hefur hann unnið að rannsóknum og við ritstörf á sviði alþjóðastjórnmála og stjórnmálaheimspeki fyrir hugveitur í Bretlandi.