Hlutfall fyrstu íbúðakaupa hefur aukist

Árið 2008 voru fyrstu kaupendur innan við 10% af viðskiptum með fasteignir á höfuðborgarsvæðinu. Í fyrra var hlutfallið 23%. Hagfræðingur spyr hvort fyrirkomulagið á íbúðamarkaði sé að auka aðstöðumun milli hópa.

hús íbúð fasteignir
Auglýsing

Hlut­fall þeirra sem eru að kaupa sér íbúðir í fyrsta skipti hefur auk­ist tals­vert á und­an­förnum árum, sam­kvæmt tölum sem Þjóð­skrá Íslands tekur sam­an. Töl­urnar hafa verið teknar saman frá árinu 2008 og á þeim tíma voru fyrstu kaup yfir­leitt lít­ill hluti við­skipta. Það ár voru innan við 10% fast­eigna­við­skipta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hjá fyrstu kaup­end­um. Árið 2016 var hlut­fall fyrstu kaup­enda hins vegar 23%. 

Þetta kemur fram í pistli hag­fræð­ings­ins Ara Skúla­sonar hjá Lands­bank­anum. Sömu sögu er að segja á öðrum lands­svæðum og þró­unin er alls staðar sú sama. „Fyrstu kaupum hefur þannig ekki ein­ungis fjölg­að, heldur hefur þeim fjölgað hlut­falls­lega mik­ið,“ segir Ari meðal ann­ar­s. 

„Það er því ljóst að ungt fólk hefur verið að eign­ast sínar fyrstu fast­eignir á síð­ustu árum og virkni þess á mark­aðnum hefur auk­ist tölu­vert með árun­um. Því miður eru tölur um fyrstu kaup ekki til nema frá árinu 2008 og því ekki hægt að gera sam­an­burð við önnur tíma­bil. Þessi nið­ur­staða stang­ast nokkuð á við þá skoðun að ungt fólk geti ekki eign­ast fast­eignir og vekur líka upp margar spurn­ing­ar,“ skrifar Ari. 

Auglýsing

Það megi til dæmis spyrja hvort ungt fólk geti almennt keypt íbúðir hjálp­ar­laust eða hvort það fái stuðn­ing frá for­eldrum eða öðrum ætt­ing­um. Þá megi í fram­haldi af því spyrja hvort það sé fyrst og fremst ungt fólk úr betur stæðum fjöl­skyldum sem á mögu­leika á að kaupa hús­næði. „Spurn­ing­arnar eru fleiri en margar þeirra snú­ast um hvort núver­andi fyr­ir­komu­lag á íbúða­lána­mark­aði sé að auka aðstöðumun milli hópa.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None