Kvíðir næstu mánaðarmótum í Vestmannaeyjum

Kjaradeilur sjómanna og útgerðarfélaga hafa víðtæk efnahagsleg áhrif.

7DM_2283_raw_0600.JPG
Auglýsing

„Þetta er bara að versna og ég kvíð­i ­fyrir mán­aða­mót­un­um,“ segir Arn­ar G. Hjalta­lín, for­maður stétt­ar­fé­lags­ins Dríf­anda í Vest­manna­eyj­um, í við­tali við Morg­un­blaðið í dag um þá alvar­legu stöðu sem fisk­vinnslu­fólk er í vegna vinnslu­stöðv­un­ar í verk­falli sjó­manna. 

Eins og fram kom í fréttum í gær þá slitn­aði upp úr við­ræð­u­m ­samn­inga­nefnda sjó­manna og útvegs­manna. ­Boðað hafði verið til­ sátta­fundar upp úr hádegi en við­ræð­unum var slitið eftir rúm­lega t­veggja tíma fund. Ekki hefur verið boðað til fundar á nýjan leik og lausn á deil­unni er ekki í sjón­máli.



Í Vest­manna­eyjum eru nú tæp­lega 300 manns sem starfa við fisk­vinnslu komnir á atvinnu­leys­is­bæt­ur og hefur þeim fjölgað eftir því sem liðið hefur á mán­uð­inn, að því er fram kemur í Morg­un­blað­inu

Arnar seg­ir að einnig sé hópur fólks eða nálægt 20 manns sem ekki eigi rétt á bót­u­m og auk þess þekki hann dæmi um ein­stak­linga sem skrái sig ekki atvinnu­lausa því þeir vilji ekki þiggja bæt­ur. ,,Tvö fyr­ir­tæki hér hafa lof­að því að þeim sem hjá þeim vinna en eiga ekki rétt á bótum verði bætt það ­upp en fólk er engu að síður að tapa al­veg rosa­lega miklu vegna þessa,“ ­segir hann við Morg­un­blað­ið. „Fólk tekur þessu með­ ­jafn­að­ar­geði en eftir því sem lengra líður verður ástandið verra,“ seg­ir hann í við­tal­inu við Morg­un­blað­ið. 

Auglýsing

Í sein­ustu viku ­fjölg­aði fisk­vinnslu­fólki á atvinnu­leys­is­skrá um hund­rað og var heild­ar­fjöld­i um­sókna um skrán­ingu á atvinnu­leys­is­skrána kom­inn í 1.440, að því er segir í blað­in­u. ­Starfs­fólk í fisk­vinnslu, sem sag­t hefur verið upp og hefur sótt um ­skrán­ingu á atvinnu­leys­is­skrá, ­skipt­ist þannig að konur eru held­ur fleiri en karlar eða 737 tals­ins en karl­arnir eru 703.



Í yfir­lýs­ingu frá Sam­tökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi kemur fram að það séu sjó­menn sem séu að víkj­ast undan ábyrgð, með því að gangi frá samn­ings­borði. Þessu vísar samn­inga­nefnd sjó­manna á bug og segir að nú sé full­reynt að sinni að ná samn­ing­um. Sjó­menn muni ekki láta kúga sig.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None