Alþingi „skortir jarðsamband og tengsl við almenning í landinu“

Gylfi Arnbjörnsson er forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson er forseti ASÍ.
Auglýsing

Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) telur að for­sætis­nefnd nýs Alþingis hafi fallið á fyrstu próf­raun sinni og „og sýnt að Alþingi skortir jarð­sam­band og tengsl við almenn­ing í land­in­u.“ Það hafi nefndin sýnt þegar hún ákvað að beita sér ekki fyrir breyt­ingum á launa­hækk­unum þing­manna heldur draga ein­ungis úr starfs­kostn­aði þeirra. Þetta kemur fram í ályktun sem mið­stjórn ASÍ hefur sent frá sér.

For­sætis­nefnd ákvað á þriðju­dag að ferða­kostn­að­ur og starfs­­kostn­aður þing­­manna verður lækk­­aður um ríf­­lega 100 þús­und krón­­ur, sem sam­svarar um 150 þús­und króna launa­­lækkun fyrir skatt. Það var við­bragð við kröfum um að miklar launa­hækk­anir þing­manna, sem kjara­ráð úrskurð­aði um á kjör­dag í októ­ber, yrðu dregnar til baka. Alls hækk­uðu laun þing­manna um 44,3 pró­sent við ákvörð­un­ina, eða um 338.254 krónur á mán­uði. Þeir eru nú með 1.101.194 krónur í þing­fara­kaup.

Ákvörðun kjara­ráðs var harð­lega gagn­rýnd og mik­ill þrýst­ingur skap­að­ist á stjórn­mála­menn að beita sér fyrir því að draga hækk­un­ina að ein­hverjum leyti til baka. Í ályktun ASÍ segir að lands­mönnum hafi ofboðið launa­hækk­un­in. „Síðan þá er búið að skipta um helm­ing þing­manna og snér­ust kosn­ing­arnar í haust ekki síst um breytt sið­ferð­i. Nýir þing­menn höfðu tæki­færi til að beita sér og sýna í verki að alvara lá að baki kosn­inga­lof­orðum og taka til baka hækkun þing­fara­launa umfram það sem hinn almenni launa­maður hefur fengið í sitt umslag. Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands­ins mót­mælir hálf­káki for­sætis­nefndar þings­ins og krefst þess að Alþingi taki málið upp og aft­ur­kalli hækk­anir kjara­ráðs. Mið­stjórn ASÍ minnir á að for­sendu­á­kvæði kjara­samn­inga eru til end­ur­skoð­unar nú í febr­úar og hækk­anir til alþing­is­manna og æðstu emb­ætt­is­manna geta sett fram­hald kjara­samn­inga alls þorra lands­manna í upp­nám.“

Auglýsing

Sam­­­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs voru laun for­­­­seta Íslands hækkuð í 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­­­ar­­­­kaup alþing­is­­­­manna fór í 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­­­sæt­is­ráð­herra að með­­­­­­­töldu þing­far­­­­ar­­­­kaupi eru nú 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­­­arra ráð­herra að með­­­­­­­töldu þing­far­­­­ar­­­­kaupi 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun for­­­­sæt­is­ráð­herra voru áður tæp­­­­lega 1,5 millj­­­­ónir en laun for­­­­seta voru tæpar 2,5 millj­­­­ón­­­­ir.

Laun þing­­­manna hækk­­­uðu, líkt og áður sagði, hlut­­­falls­­­lega mest við ákvörðun kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­sent. Krón­u­­­tölu­hækkun launa þeirra var 338.254 krón­­­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None