Ásmundur Friðriksson
Auglýsing

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mun greiða atkvæði á móti nýju áfeng­is­frum­varpi, sem hefur það mark­mið að afnema einka­sölu ÁTVR á áfengi. Ásmundur segir við Frétta­blaðið að hann hafi haft þessa afstöðu lengi og finn­ist fyr­ir­komu­lagi áfeng­is­sölu ágæt­lega fyrir kom­ið. „Ég er mjög íhalds­samur í þessum efn­um.“ Afstaða Ásmundar er í and­stöðu við sam­þykkta lands­fund­ar­á­lyktun Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá lands­fundi hans árið 2015. Þar sagði að mik­il­vægt sé „ að stjórn­völd stuðli að heil­brigðri sam­keppni á neyt­enda­vöru­mark­aði. Löngu tíma­bært er að afnema sam­keppn­is­rekstur rík­is­ins í smá­sölu og gefa verslun með áfengi frjálsa.“

Níu þing­menn úr fjórum flokkum lögðu fram frum­varpið í gær. Verði það að lögum verður einka­leyfi ÁTVR á áfeng­is­sölu afnumið frá og með næstu ára­mót­u­m, sala á því heim­iluð í sér­­versl­un­um, í sér­­­rýmum innan versl­anna eða yfir búð­­ar­­borð, áfeng­is­aug­lýs­ingar inn­lendra aðila heim­il­aðar og leyfi­legt verður að aug­lýsa það í inn­lendum fjöl­miðl­u­m. 

Þing­­menn­irnir sem leggja frum­varpið fram koma úr Sjálf­­stæð­is­­flokki, Við­reisn, Bjartri fram­­tíð og Píröt­­um. Þeir eru Teitur Björn Ein­­ar­s­­son, Áslaug Arna Sig­­ur­­björns­dótt­ir, Vil­hjálmur Árna­­son og Hildur Sverr­is­dóttir úr Sjálf­­stæð­is­­flokki, Pawel Bar­toszek úr Við­reisn, Nichole Leigh Mosty úr Bjartri fram­­tíð og Pírat­­arnir Jón Þór Ólafs­­son, Ásta Guð­rún Helga­dóttir og Viktor Orri Val­­garðs­­son. Pawel sagði í sam­tali við Kjarn­ann að hann teldi nokkuð öruggan meiri­hluta á þing­inu fyrir mál­inu. Alls eru þing­­menn Sjálf­­stæð­is­­flokks, Við­reisn­­­ar, Bjartrar fram­­tíðar og Pírata 42 tals­ins. Því mættu tíu þing­­menn flokk­anna vera á móti frum­varp­inu, það yrði samt sem áður með meiri­hluta. 

Auglýsing

Auk Ásmundar lýsir Einar Brynj­ólfs­son, þing­maður Pírata, yfir efa­semdum um frum­varpið í Frétta­blað­inu í dag. Þar seg­ist hann óviss um hver afstaða hans verði til atkvæða­greiðsl­unnar og að hann muni mjög lík­lega byggja ákvörðun sína á umsögnum land­lækn­is.

Vil­hjálmur Árna­­son, þing­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks, stóð að fram­lagn­ingu sam­­bæri­­legs frum­varps í tvígang á síð­­asta kjör­­tíma­bili. Í síð­­­ara skiptið voru flutn­ings­­menn frum­varps­ins 16 tals­ins. Þeir komu þá úr röð­um Sjálf­­­stæð­is­­­flokks, Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks, Bjartrar fram­­­tíðar og Pírata. Af þeim eru tíu enn á þingi og fjórir ráð­herrar í nýrri rík­­is­­stjórn. Það eru þau Sig­ríður Á. And­er­­sen, dóms­­mála­ráð­herra, Jón Gunn­­ar­s­­son, sam­­göngu- og sveit­­ar­­stjórn­­­ar­ráð­herra, Guð­laugur Þór Þórð­­ar­­son utan­­­rík­­is­ráð­herra og Björt Ólafs­dótt­ir, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None