Ríkisstjórnin hyggst stórbæta aðgengi almennings að fjárhagsupplýsingum ríkisins, og mun stíga stórt skref í þá átt um miðjan mars þegar vefurinn opnirreikningar.is verður opnaður. Þar verður hægt að nálgast greiðsluupplýsingar um tvö hundruð stofnana.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu, en málið var á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag.
„Á vefnum munu árlega birtast á bilinu 300-400 þúsund reikningar vegna kaupa ríkisins á vörum og þjónustu. Hægt verður að leita að reikningum á vefnum með ýmsum leiðum, t.d. út frá stofnunum eða tegund kostnaðar. Á vefnum verða ennfremur birt skönnuð fylgiskjöl með reikningum, en með því gengur Ísland lengra en önnur ríki sem hafa unnið svipuð verkefni. Sérstaklega hefur verið hugað að öryggismálum og sjónarmiðum um persónuvernd og sérstakar síur koma í veg fyrir að viðkvæmar persónuupplýsingar birtist, svo sem vegna læknisheimsókna, bóta eða launa,“ segir í tilkynningunni.
Í fyrstu verða upplýsingar frá aðalskrifstofum ráðuneyta aðgengilegar á nýja vefnum, en í næstu áföngum verða stofnanir í A-hluta ríkissjóðs hluti af kerfinu. Stefnt er að því að verkefnið verði að fullu komið til framkvæmda um áramótin.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra hefur áður greint frá þessum áformum stjórnvalda. Hann hefur sagt að umfang bókhaldsins sem verður gert opinbert sé um 50 milljarðar króna á ársgrunni.