Þorgerður Katrín: „Þetta er einfaldlega ekki á dagskrá“

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að það standi alls ekki til að ríkið mæti þeirri stöðu sem er uppi í kjaradeilu sjómanna og útgerða með sértækum aðgerðum. Lögbann og upptaka sjómannaafsláttar sé ekki á dagskrá.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, segir það ekki á dag­skrá hjá rík­is­stjórn­inni að setja lög­bann á verk­fall sjó­manna, end­ur­vekja sjó­manna­af­slátt­inn eða mæta stöð­unni sem er uppi í kjara­deilu þeirra við útgerðir lands­ins með öðrum sér­tækum aðgerð­um. „Þetta er ein­fald­lega ekki á dag­skrá. Ábyrgðin er hjá samn­ings­að­ilum og þeir vita að því,“ segir Þor­gerður Katrín í sam­tali við Kjarn­ann. Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í við­tali í Silfr­inu í gær að ekki væri til umræðu að taka upp sjó­manna­af­slátt. Þar sagði hann orð­rétt: „við erum ekki að fara að tala um sjó­manna­af­slátt að nýju.““

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er mik­ill þrýst­ingur á stjórn­völd að grípa inn í deil­una, en sjó­menn hafa verið í verk­falli frá því um miðjan des­em­ber. Póli­tískt kemur sá þrýst­ingur að mestu frá hluta þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Páll Magn­ús­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Suð­ur­kjör­dæmi og for­maður atvinnu­vega­nefnd­ar, sagði ynda í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun að hann vildi „ekki úti­loka það að ríkið kunni að þurfa að grípa inn í þetta með ein­hverjum hætti og það er hægt með öðrum hætti en með laga­setn­ingu. Stjórn­völd geta ekki látið þessa auð­lind þjóð­ar­innar liggja óbætta hjá garði. Það er bara óraun­sæi og ég veit svo sem ekki hvern menn eru að blekkja með því ef þeir eru að halda því fram að það sé hægt eða að stað­hæfa það að það verði ekki undir neinum kring­um­stæðum gripið inn í þessa kjara­deilu.“

Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tók undir með Páli og sagði að það væri hægt að stíga inn í deil­una með því að nota skatt­kerfið til að „liðka fyr­ir“. Þegar Gunnar Bragi var spurður hvort hann væri að tala um sjó­manna­af­slátt eða eitt­hvað slíkt, svar­aði hann: „Já til dæmis eitt­hvað slíkt.“

Auglýsing

Þessi skoðun kom einnig fram í við­tali við Guð­mund Krist­jáns­son, for­stjóra Brims, á Morg­un­vakt­inni á Rás 1 í morg­un. Þar sagði Guð­mund­ur, sem stýrir einu stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins, að hann vilji að sjó­menn njóti dag­pen­inga­greiðslna en skatta­frá­dráttur er heim­ill á móti slíkum greiðsl­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None