Langmest viðskipti með íbúðir á milli einstaklinga

Í kringum 75% fasteignaviðskipta með íbúðir á höfuðborgarsvæðinu eiga sér stað á milli einstaklinga. Fyrirtæki eru mun duglegri að kaupa íbúðir af einstaklingum miðsvæðis í Reykjavík en annars staðar.

img_4566_raw_0710130531_10191467436_o.jpg
Auglýsing

Langstærstur hluti við­skipta með íbúða­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á sér stað milli ein­stak­linga. Ekki hafa orðið gríð­ar­legar hlut­falls­legar breyt­ingar þar á frá því fyrir hrun. Þetta má sjá í tölum sem Þjóð­skrá Íslands hefur tekið saman um skipt­ingu við­skipta með íbúð­ar­hús­næði

Í töl­unum er hægt að sjá við­skipti með íbúð­ar­hús­næði eftir árs­fjórð­ungum aftur til árs­ins 2006. Líkt og sést á mynd­inni hér að neðan er hlut­fall við­skipta á milli ein­stak­linga, það er þegar ein­stak­lingur selur ein­stak­lingi, lang­hæst. Iðu­lega eru um 3 af hverjum 4 við­skiptum milli ein­stak­linga. Næst koma fyr­ir­tæki sem selja ein­stak­lingum íbúða­hús­næði, en það er oft í kringum 15-20 pró­sent af við­skiptum í hverjum árs­fjórð­ung­i. 

Viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Mynd frá Þjóðskrá.

Auglýsing

Und­an­farin ár hefur hlut­fall ein­stak­linga sem selja fyr­ir­tækjum íbúða­hús­næði verið í kringum 5-7 pró­sent. Það hlut­fall hækk­aði strax í hrun­inu, og fór upp í 12 pró­sent í lok árs 2008 og var í kringum tíu pró­sent fyrri hluta árs­ins 2009. 

Önnur staða mið­svæðis

Myndin er aðeins öðru­vísi þegar horft er til Reykja­víkur vestan Kringlu­mýr­ar­braut­ar. Engu að síður er það svo að lang­flest við­skipti eiga sér stað á milli ein­stak­linga, þrátt fyrir að hlut­fallið hafi lækkað síð­ustu ár. Und­an­farin tvö ár hefur hlut­fall við­skipta milli ein­stak­linga verið á bil­inu 71 til 81 pró­sent. 

Höfuðborgarsvæði vestan Kringlumýrarbrautar. Mynd: Þjóðskrá Íslands

Hlut­fall fyr­ir­tækja sem kaupa íbúða­hús­næði af ein­stak­lingum hefur auk­ist tals­vert á þessu svæði á und­an­förnum árum. Árið 2011 voru slík við­skipti innan við fimm pró­sent af heild­ar­fjöld­an­um, en þau juk­ust svo mjög skarpt á seinni hluta árs­ins 2012, og voru komin í 14 pró­sent í lok þess árs. Í fyrra voru fast­eigna­við­skipti þar sem fyr­ir­tæki keyptu af ein­stak­lingum í kringum 13 pró­sent. Það er því tals­vert meira um að fyr­ir­tæki kaupi íbúða­hús­næði af ein­stak­lingum mið­svæðis í Reykja­vík heldur en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í heild. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None