Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, segir ótækt að Sigríður Andersen dómsmálaráðherra haldi því fram að kynbundinn launamunur sé ekki til. Þetta kemur fram í færslu Hönnu Katrínar á Facebook.
„Það er vitað að kynbundinn launamunur er raunverulegur. Það er hlutverk okkar þingmanna að gera það sem við getum að útrýma því óréttlæti. Þess vegna er ótækt að dómsmálaráðherra haldi því fram að kynbundinn launamunur sé ekki til, heldur sé ástæða launamunar að konur verji meiri tima með börnum sínum. Það er árið 2017 og konur og karlar eiga að fá borguð sömu laun fyrir sömu vinnu. Þetta er ekkert til að rífast um,“ skrifar Hanna Katrín.
Jafnlaunavottun er eitt af þeim frumvörpum sem eru á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir vorþing. Það var eitt stærsta kosningamál Viðreisnar.
Kjarninn greindi frá því á miðvikudag að Sigríður Andersen dómsmálaráðherra hefði sagt að ekki væri hægt að fullyrða nokkuð um að það fyrirfinnist kynbundið misrétti á launamarkaði. Þetta kom fram í grein sem hún skrifaði í árshátíðarrit Orators, félags laganema við Háskóla Íslands.
„Það er rétt að karlar afla almennt meiri tekna en það skýrist af meiri vinnu þeirra utan heimilis. Vafalaust er ástæðan meðal annars sú að konur eiga enn fleiri dýrmætar stundir með börnum sínum en karlar. Hvernig fólk kýs að haga þeim málum hverju sinni er eitthvað sem foreldrar ákveða innan fjölskyldunnar og sú ákvörðun á skilið fulla virðingu,“ skrifaði ráðherrann meðal annars. „Það má því segja að þótt kannanir mæli enn um 5% „kynbundinn“ launamun þá er hann of lítill til að hægt sé að fullyrða nokkuð um kynbundið misrétti á launamarkaði. Til þess eru kannanirnar of takmarkaðar ásamt því að mannleg samskipti verða aldrei felld að fullu í töflureikni. Þær munu því seint geta metið hina huglægu þætti sem skipta svo miklu máli í sambandi vinnuveitenda og starfsmanns.“