Alls eru 61,5 prósent Íslendinga mótfallnir nýju áfengisfrumvarpi sem felur í sér að heimilt verður að selja áfengi í verslunum frá og með næstu áramótum. Einungis 22,8 prósent eru hlynntir þeirri ráðagerð en 15,7 prósent eru hvorki hlynntir eða mótfallnir ráðagerðinni. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Zenter rannsóknir framkvæmdi daganna 9. til 14. febrúar síðastliðinn. Um var að ræða netkönnun og var svarfjöldi 1.023 einstaklingar.
Nokkur munur er á afstöðu Íslendinga gagnvart frumvarpinu eftir aldri. Yngri aldurshópar eru almennt hlynntari því að áfengi verði selt í verslunum en eldri aldurshópar. Þá eru karlar mun hlynntari því að frumvarpið verði að lögum en konur og íbúar höfuðborgarsvæðisins marktækt hlynntari því en íbúar á landsbyggðinni.
Myndi afnema einokun ÁTVR á áfengissölu
Frumvarpið sem um ræðir var lagt fram 2. febrúar síðastliðinn. Það felur í sér að einkaleyfi ÁTVR á sölu áfengis verði afnumið og að sala á því verði heimiluð í sérverslunum, í sérrýmum innan verslanna eða yfir búðarborð. Auk þess myndu innlendir áfengisframleiðendur og íslenskir fjölmiðlar auglýsa áfengi ef frumvarpið yrði að lögum.
Þingmennirnir sem leggja frumvarpið fram koma úr Sjálfstæðisflokki, Viðreisn, Bjartri framtíð og Pírötum. Þeir eru Teitur Björn Einarsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Hildur Sverrisdóttir úr Sjálfstæðisflokki, Pawel Bartoszek úr Viðreisn, Nichole Leigh Mosty úr Bjartri framtíð og Píratarnir Jón Þór Ólafsson, Ásta Guðrún Helgadóttir og Viktor Orri Valgarðsson.
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, stóð að framlagningu sambærilegs frumvarps í tvígang á síðasta kjörtímabili. Í síðara skiptið voru flutningsmenn frumvarpsins 16 talsins. Þeir komu þá úr röðum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, Bjartrar framtíðar og Pírata. Af þeim eru tíu enn á þingi og fjórir ráðherrar í nýrri ríkisstjórn. Það eru þau Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra.