Sex af hverjum tíu Íslendingum er mótfallnir nýju áfengisfrumvarpi

Ný könnun sýnir að mikill meirihluti Íslendinga er mótfallinn því að einokun ÁTVR á smásölu áfengis verði afnumin. Einungis 21,5 prósent landsmanna er því fylgjandi.

bjór að skála
Auglýsing

Alls eru 61,5 pró­sent Íslend­inga mót­fallnir nýju áfeng­is­frum­varpi sem felur í sér að heim­ilt verður að selja áfengi í versl­unum frá og með næstu ára­mót­um. Ein­ungis 22,8 pró­sent eru hlynntir þeirri ráða­gerð en 15,7 pró­sent eru hvorki hlynntir eða mót­fallnir ráða­gerð­inni. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Zenter rann­sóknir fram­kvæmdi dag­anna 9. til 14. febr­úar síð­ast­lið­inn. Um var að ræða net­könnun og var svar­fjöldi 1.023 ein­stak­ling­ar. 

Nokkur munur er á afstöðu Íslend­inga gagn­vart frum­varp­inu eftir aldri. Yngri ald­urs­hópar eru almennt hlynnt­ari því að áfengi verði selt í versl­unum en eldri ald­urs­hóp­ar. Þá eru karlar mun hlynnt­ari því að frum­varpið verði að lögum en konur og íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins mark­tækt hlynnt­ari því en íbúar á lands­byggð­inn­i. 

Myndi afnema ein­okun ÁTVR á áfeng­is­sölu

Frum­varpið sem um ræðir var lagt fram 2. febr­úar síð­ast­lið­inn. Það felur í sér að einka­­leyfi ÁTVR á sölu áfengis verði afnumið og að sala á því verði heim­iluð í sér­­versl­un­um, í sér­­­rýmum innan versl­anna eða yfir búð­­ar­­borð. Auk þess myndu inn­lendir áfeng­is­fram­leið­endur og íslenskir fjöl­miðlar aug­lýsa áfengi ef frum­varpið yrði að lög­um. 

Auglýsing

Þing­­menn­irnir sem leggja frum­varpið fram koma úr Sjálf­­stæð­is­­flokki, Við­reisn, Bjartri fram­­tíð og Píröt­­um. Þeir eru Teitur Björn Ein­­ar­s­­son, Áslaug Arna Sig­­ur­­björns­dótt­ir, Vil­hjálmur Árna­­son og Hildur Sverr­is­dóttir úr Sjálf­­stæð­is­­flokki, Pawel Bar­toszek úr Við­reisn, Nichole Leigh Mosty úr Bjartri fram­­tíð og Pírat­­arnir Jón Þór Ólafs­­son, Ásta Guð­rún Helga­dóttir og Viktor Orri Val­­garðs­­son. 

Vil­hjálmur Árna­­son, þing­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks, stóð að fram­lagn­ingu sam­­bæri­­legs frum­varps í tvígang á síð­­asta kjör­­tíma­bili. Í síð­­­ara skiptið voru flutn­ings­­menn frum­varps­ins 16 tals­ins. Þeir komu þá úr röð­um Sjálf­­­stæð­is­­­flokks, Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks, Bjartrar fram­­­tíðar og Pírata. Af þeim eru tíu enn á þingi og fjórir ráð­herrar í nýrri rík­­is­­stjórn. Það eru þau Sig­ríður Á. And­er­­sen, dóms­­mála­ráð­herra, Jón Gunn­­ar­s­­son, sam­­göngu- og sveit­­ar­­stjórn­­­ar­ráð­herra, Guð­laugur Þór Þórð­­ar­­son utan­­­rík­­is­ráð­herra og Björt Ólafs­dótt­ir, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None