Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sent frá sér áréttingu „að gefnu tilefni“ um skattlagningu á fæðis- og dagpeningum. Tilefnið er sjómannadeilan.
Samkvæmt lauslegu mati ráðuneytisins er heildarkostnaður útgerðarinnar vegna greiðslu fæðispeninga sjómanna á fiskiskipum um 2,3 milljarðar króna á ári miðað við gildandi kjarasamninga, segir í áréttingunni. „Er þá miðað við að fjöldi lögskráningardaga sjómanna sé 1,5 - 1,6 milljónir daga á ári og að fæðispeningar séu að jafnaði 1.500 krónur á dag. Áætlað tekjutap ríkisins af þeirri fjárhæð, yrði hún undanþegin skatti, er u.þ.b. 730 m.kr. á ári, en því til viðbótar myndu sveitarfélögin tapa u.þ.b. 330 m.kr. í útsvarstekjum.“
Þá segir ráðuneytið að í fyrsta lagi fái sjómenn fæðispeninga greidda samkvæmt kjarasamningum og þeir greiði tekjuskatt og útsvar af reiknuðum fæðispeningum sem séu skilgreindir sem sérstök hlunnindi. Fæðispeningar séu svo frádráttarbær rekstrarkostnaður hjá útgerðinni og af þeim sé bæði greitt tryggingagjald og iðgjald í lífeyrissjóð.
Í öðru lagi miðist dagpeningagreiðslur við að verja þurfi dagpeningum að fullu til uppihalds, þar með talið kostnaðar vegna fæðis. Það sé svo skattayfirvalda að meta hvort á móti þessum dagpeningum standi nægilega há útgjöld með hliðsjón af árlegu skattmati. Í þriðja lagi hátti það almennt svo um aðra launþega að þeir borgi fyrir fæði sem vinnuveitandi tryggi þeim, til að mynda í mötuneytum, með tekjum sem þegar hafi verið skattlagðar.