Íslandsbanki hagnaðist um 20 milljarða króna í fyrra

Annar ríkisbankanna bókfærði 1,7 milljarða kostnað vegna skemmda á höfuðstöðvum sínum og flutnings í nýtt húsnæði. Vaxtamunur hækkaði og arðsemi eigin fjár lækkaði á milli ára.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Auglýsing



Íslands­banki hagn­að­ist  um 20,2 millj­arða króna eftir skatta á síð­asta ári. Hagn­að­ur­inn er nálægt því sá sami og bank­inn skil­aði árið 2015, þegar hann var 20,6 millj­arðar króna. Sam­setn­ing hagn­að­ar­ins er þó ann­ars eðl­is. Í fyrra var hann fyrst og síð­ast vegna sölu á eign­ar­hluta Borg­unar í Visa Europe (Ís­lands­banki er stærsti eig­andi Borg­unar með 63,5 pró­sent eign­ar­hlut) og sterkum grunn­tekj­um. Árið 2015 var hann hins vegar fyrst og síð­ast vegna virð­is­breyt­ingu útlána. Þ.e. lán sem höfðu verið bók­færð með afföllum reynd­ust skila meiru en reiknað hafði verið með. Íslands­banki er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins.

Í afkomutil­kynn­ingu frá Íslands­banka kemur fram að 1,7 millj­arða króna ein­skiptis­kostn­aður hafi verið bók­aður í árs­reikn­ing bank­ans vegna skemmda á hús­næði hans við Kirkju­sand og flutn­ings í nýjar höf­uð­stöðv­ar. Myglu­sveppur fannst í gömlu höf­uð­stöðvum Íslands­banka snemma á síð­asta ári og í kjöl­farið ákvað bank­inn að flytja starf­semi sína í Kópa­vog.

Arð­semi eigin fjár var 10,2 pró­sent á síð­asta ári og lækk­aði á milli ár. Hagn­aður af reglu­legri starf­semi dróst líka saman um rúman millj­arð króna og var 15,1 millj­arður króna. Hreinar vaxta­tekjur juk­ust hins vegar um 14 pró­sent og voru 31,8 millj­arðar króna. Þá hækk­aði vaxta­munur og var 3,1 pró­sent „að hluta vegna hærra vaxtaum­hverfis og hækk­andi eigin fjár“.

Auglýsing

Heild­ar­eignir Íslands­banka voru 1.048 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og útlán til við­skipta­vina og lausafé voru 93 pró­sent af eignum bank­ans. Eig­in­fjár­hlut­fall hans var 25,2 pró­sent.

Birna Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Íslands­banka, segir að árið í fyrra hafi verið mjög gott ár fyrir bank­ann og ein­kennst af mik­il­vægum áföngum í sögu hans. „Grunn­rekstur bank­ans hélt áfram að styrkj­ast og tekjur voru stöðug­ar. End­ur­skipu­lagn­ingu lána­safns­ins er lok­ið, eign­ar­hlutir í óskyldum rekstri hafa verið seldir og gæði eigna halda áfram að aukast.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None