Century Aluminum afskrifar álver í Helguvík

Móðurfyrirtæki Norðuráls hefur fært niður álversverkefni í Helguvík um 152 milljónir dala. Þar með virðist endanlega ljóst að ekkert verður af uppbyggingu álvers þar, þó það hafi í raun blasað við lengi.

Helguvík.
Helguvík.
Auglýsing

Cent­ury Alu­m­inum, móð­ur­fé­lag Norð­ur­áls, hefur afskrifað álvers­upp­bygg­ingu í Helgu­vík, sam­kvæmt því sem fram kemur í árs­fjórð­ungs­tölum fyr­ir­tæk­is­ins fyrir síð­asta árs­fjórð­ung árs­ins 2016. Þar kemur fram að 152,2 millj­óna dala tap hafi verið skráð vegna álvers­verk­efn­is­ins í Helgu­vík. Það eru um 16,5 millj­arðar íslenskra króna. 

Reyndar hefur lengi verið ljóst að upp­bygg­ing á álveri í Helgu­vík yrði ekki að veru­leika þó nú virð­ist það form­lega orðið ljóst. Síð­ast með alþjóð­legum gerð­ar­dómi sem féll fyrir jól, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að HS Orka þyrfti ekki að standa við ákvæði raf­orku­samn­ings sem fyr­ir­tækið und­ir­rit­aði við Norð­urál Helgu­vík í apríl 2007. Sá samn­ingur var um hluta af þeirri orku sem átti að nota í álver­inu, en í mjög langan tíma hefur HS Orka reynt að losna undan samn­ingn­um, enda verið stað­fest að hann gæti ekki skilað fyr­ir­tæk­inu arð­sem­i. 

Gerð­ar­dóm­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu undir lok síð­asta ár að samn­ing­ur­inn á milli HS Orku og Norð­ur­áls Helgu­vík væri ekki lengur í gildi. Fyr­ir­tækið tók þó ekki strax ákvörðun um að slá áformin af, og brást við með því segj­ast ætla að kanna hvort mögu­legt væri að afla orku til verk­efn­is­ins eftir öðrum leið­u­m. 

Auglýsing

Áður höfðu bæði for­stjóri HS Orku og for­stjóri Lands­virkj­unar bent á að heims­mark­aðs­verð á áli þyrfti að hækka um tugi pró­senta til þess að álver í Helgu­vík gæti borið sig og að virkj­anir sem ráð­ast þyrfti í til að sjá því fyrir orku gætu verið arð­bær­ar.  

Bjarni Bene­dikts­­son, fyrr­ver­andi fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sagði í sept­­em­ber 2016 við sér­­stakar umræður á Alþingi: „Ég sé ekki að það ál­ver sé að verða sér út um raf­­­­­magn. Það virð­ist ekki vera að fæð­­ast nein lausn á því og að öðru leyti þá sé ég ekki að það sé afl til að stefna á slík verk­efni á næst­unn­i.“ Hann bætti við að hann sæi ekki fyrir sér að álverum muni yfir höfuð fjölga á Íslandi í fram­­tíð­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None