Kannað hvort íslenskir fjárfestar væru á bak við kaup í Arion

Seðlabanki Íslands kannaði hvort aðrir fjárfestar, til dæmis íslenskir, stæðu í raun á bak við tilboð í Arion banka. Svo virðist ekki vera.

7DM_0588_raw_2071.JPG
Auglýsing

Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, bað Seðla­banka Íslands að kanna hvort ein­hverjir aðrir stæðu að baki til­boðum vog­un­ar­sjóða um kaup á hlut í Arion banka. Þar á bæ sé talið að svo sé ekki, heldur séu þetta fjár­festar sem ætli sér að vera í banka­starf­semi hér til nokk­urrar fram­búð­ar. 

Þetta kom fram í svari ráð­herr­ans við fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­manns Vinstri grænna, á Alþingi í dag. Katrín spurði að því hvort Bene­dikt vissi hverjir væru á bak við vog­un­ar­sjóð­ina og hvort að mat hefði verið lagt á það hvort þeir ætli sér að vera í banka­starf­semi áfram eða hvort þeir ætli sér að selja hlut sinn aft­ur, og þá vænt­an­lega með hagn­aði. Þá spurði hún líka hvort að mat hefði verið lagt á það hver efna­hags­leg áhrif yrðu af því að hlut­ur­inn myndi ganga til rík­is­ins, eins og myndi ger­ast í lok næsta árs ef ekki hefði orðið af sölu. Hún spurði einnig að því hvort sala á hlut í Arion banka myndi koma í veg fyrir að hægt verði að end­ur­skipu­leggja fjár­mála­kerfið í heild sinni, og benti á að ekki væri gert ráð fyrir neinni slíkri heild­ar­end­ur­skoðun í drögum að eig­enda­stefnu rík­is­ins. 

Bene­dikt greindi frá því að hann hefði beðið Seðla­bank­ann að athuga hvort ein­hverjir aðrir stæðu á bak við þessi til­boð í Arion banka. „Ég taldi afar mik­il­vægt að vita það hvort þetta væru raun­veru­lega þessir aðil­ar, sem allir eru erlend­ir, eða hvort þarna stæðu til dæmis ein­hverjir íslenskir fjár­festar að baki, en mér er sagt að svo sé ekki.“ 

Auglýsing

Ráð­herr­ann ítrek­aði í seinni ræðu sinni að salan væri sam­kvæmt sam­komu­lagi við slitabú Kaup­þings, en ekki rík­ið. Hann gæti bara tjáð sig um póli­tísk áhrif en ekki efna­hags­leg, og það væri ekki hent­ugt fyrir Ísland að eiga alla við­skipta­bank­ana. Um end­ur­skipu­lagn­ingu banka­kerf­is­ins sagði hann einnig að það væri ekki rík­is­ins að end­ur­skipu­leggja Arion banka, vegna þess að ríkið ætti bara 13 pró­senta hlut. Hann teldi ekki að salan myndi hafa mikil áhrif á fram­tíð­ina í banka­kerf­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None