Forsætisnefnd Alþingis hefur ákveðið að skipa þriggja manna ráðgefandi siðanefnd, sem á að taka til meðferðar erindi um meint brot á siðareglum fyrir alþingismenn.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, og Salvör Nordal, sérfræðingur við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands, munu skipa nefndina næstu fimm árin. Ásta Ragnheiður er formaður nefndarinnar.
Samkvæmt siðareglum fyrir alþingismenn, sem voru samþykktar á síðasta þingi, má forsætisnefnd skipa slíka nefnd til að fjalla um einstök mál og vera þingmönnum til ráðgjafar um framkvæmd siðareglnanna. Nefndinni er ætlað að láta í ljós álit sitt á því hvort þingmaður hafi með hátterni sínu brotið gegn hátternisskyldum sínum og meginreglum um hátterni.
Það er Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, sem gerir tillögu um formann nefndarinnar. Formaðurinn á að hafa þekkingu á störfum Alþingis og alþingismanna. Tveir aðrir nefndarmenn eiga svo að vera tilnefndir af samstarfsnefnd háskólastigsins. Annar þeirra á að hafa embættis- eða meistarapróf í lögfræði og hinn meistarapróf í heimspeki eða hagnýtri siðfræði og þekkingu á siðareglum.
Siðareglurnar fyrir alþingismenn voru samþykktar eftir þónokkuð langa meðferð á þinginu í mars síðastliðnum.