Mál Borgunar til héraðssaksóknara – Grunur um refsiverða háttsemi

FME vísaði í gær máli Borgunar til héraðssaksóknara. Grunur leikur á um að fyrirtækið hafi vanrækt að sinna kröfum um aðgerðir gegn peningaþvætti, sem er refsivert.

Kredit kort Borgun
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hefur vísað máli Borg­unar til hér­aðs­sak­sókn­ara, þar sem eft­ir­litið telur að Borgun hafi van­rækt af ásetn­ingi eða stór­kost­legu hirðu­leysi að kanna áreið­an­leika upp­lýs­inga um erlenda við­skipta­vini sína. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans var mál­inu vísað til emb­ætt­is­ins í gær og rann­sóknin því stutt á veg kom­in. Ástæða þess að mál­inu var vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara er sú að van­ræksla fjár­mála­fyr­ir­tækja á því að fylgja lögum um varnir gegn pen­inga­þvætti getur leitt af sér refs­ingu.

Þeir erlendu við­skipta­vinir sem um ræðir eru, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarn­ans, í þannig starf­semi að önnur færslu­hirð­ing­ar­fyr­ir­tæki hafa veigrað sér við að taka þau inn í við­skipti.

Upp­fylla ekki kröfur laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti

Á föstu­dag­inn var greint frá því að Fjár­mála­eft­ir­litið hefði kom­ist að þeirri nið­­ur­­stöðu, eftir athugun sem stóð í um níu mán­uði, að fram­­kvæmd, verk­lag og eft­ir­lit Borg­unar í tengslum við aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka vegna færslu­hirð­ingar félags­­ins erlendis upp­­­fylli ekki með við­un­andi hætti þær megin kröfur sem gerðar eru í lög­­­um. Borgun voru gefnir tveir mán­uðir til að ljúka úrbótum vegna athuga­­semda eft­ir­lits­ins.

Auglýsing

Fjár­­­mála­eft­ir­litið tók úrtak 16 við­­skipta­­manna á alþjóða­sviði Borg­unar þegar það fram­­kvæmdi athugun á eft­ir­liti með pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka hjá fyr­ir­tæk­inu. Í til­­viki 13 af 16 við­­skipta­­manna var ekki fram­­kvæmd könnun á áreið­an­­leika upp­­lýs­inga um við­­skipta­­menn­ina sam­­kvæmt lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka. Á meðan að á athugun Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins stóð, en hún hófst 27. maí 2016 og lauk í febr­­úar 2017, sleit Borgun við­­skipta­­sam­­bandi við þrjá þess­­ara við­­skipta­­manna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nið­­ur­­stöðu athug­unar Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins.

Þar segir einnig að eft­ir­litið hafi gert athuga­­semd við að í til­­viki fimm af 16 við­­skipta­vina Borg­unar sem voru kann­aðir hafi Borgun ekki greitt fyrstu greiðslu á grund­velli samn­ings um færslu­hirð­ingu inn á reikn­ing við­­skipta­­manns­ins, eins og lög segja til um. „Í öllum til­­vikum var um að ræða við­­skipta­­menn sem eru ein­­göngu í starf­­semi erlendis og voru ekki á staðnum til að sanna deili á sér við upp­­haf við­­skipta. Þá voru ekki fyr­ir­liggj­andi samn­ingar um að Borgun hf. hefði útvi­­stað fram­­kvæmd áreið­an­­leikakann­anna til þriðja aðila sem staddur væri á sama stað og við­­skipta­­mað­­ur­inn og þannig tryggt að við­­skipta­­mað­­ur­inn teld­ist vera á staðnum til að sanna á sér deili við fram­­kvæmd áreið­an­­leika­könn­un­­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None