Borgun uppfyllir ekki kröfur laga um aðgerðir gegn peningaþvætti

FME skoðaði 16 erlenda viðskiptamenn Borgunar í athugun sem stóð í um níu mánuði. Í tilviki 13 af 16 viðskiptamanna var ekki framkvæmd könnun á áreiðanleika upplýsinga um viðskiptamennina. Borgun hefur tvo mánuði til að ljúka úrbótum.

borgunfme
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu, eftir athugun sem stóð í um níu mán­uði, að fram­kvæmd, verk­lag og eft­ir­lit Borg­unar í tengslum við aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka vegna færslu­hirð­ingar félags­ins erlendis upp­fylli ekki með við­un­andi hætti þær megin kröfur sem gerðar eru í lög­um. Borgun hefur tvo mán­uði til að ljúka úrbótum vegna athuga­semda eft­ir­lits­ins.

Fjár­mála­eft­ir­litið tók úrtak 16 við­skipta­manna á alþjóða­sviði Borg­unar þegar það fram­kvæmdi athugun á eft­ir­liti með pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka hjá fyr­ir­tæk­inu. Í til­viki 13 af 16 við­skipta­manna var ekki fram­kvæmd könnun á áreið­an­leika upp­lýs­inga um við­skipta­menn­ina sam­kvæmt lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Á meðan að á athugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins stóð, en hún hófst 27. maí 2016 og lauk í febr­úar 2017, sleit Borgun við­skipta­sam­bandi við þrjá þess­ara við­skipta­manna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nið­ur­stöðu athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Þar segir einnig að eft­ir­litið hafi gert athuga­semd við að í til­viki fimm af 16 við­skipta­vina Borg­unar sem voru kann­aðir hafi Borgun ekki greitt fyrstu greiðslu á grund­velli samn­ings um færslu­hirð­ingu inn á reikn­ing við­skipta­maanns­ins, eins og lög segja til um. „Í öllum til­vikum var um að ræða við­skipta­menn sem eru ein­göngu í starf­semi erlendis og voru ekki á staðnum til að sanna deili á sér við upp­haf við­skipta. Þá voru ekki fyr­ir­liggj­andi samn­ingar um að Borgun hf. hefði útvi­stað fram­kvæmd áreið­an­leikakann­anna til þriðja aðila sem staddur væri á sama stað og við­skipta­mað­ur­inn og þannig tryggt að við­skipta­mað­ur­inn teld­ist vera á staðnum til að sanna á sér deili við fram­kvæmd áreið­an­leika­könn­un­ar.“

Auglýsing

Til við­bótar gerði Fjár­mála­eft­ir­litið fjórar aðrar athuga­semdir við fram­fylgni Borg­unar við lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Þær eru:

  • að Borgun hf. sinni almennt ekki með full­nægj­andi hætti reglu­bundnu eft­ir­liti með samn­ings­sam­bandi við við­skipta­menn vegna færslu­hirð­ingar félags­ins fyrir þá erlend­is.

  • að Borgun hf. hafi ekki gripið til ráð­staf­ana til að sinna með full­nægj­andi hætti rann­sókn­ar­skyldu sinni og mögu­legri til­kynn­ing­ar­skyldu vegna við­skipta sem grunur leikur á að rekja megi til pen­inga­þvættis og fjár­mögn­unar hryðju­verka vegna færslu­hirð­ingar félags­ins erlend­is.

  • að Borgun hf. hafi ekki séð til þess að starfs­menn hafi fengið full­nægj­andi þjálfun í aðgerðum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka vegna færslu­hirð­ingar félags­ins erlend­is.

  • að Borgun hf. búi ekki yfir kerfi sem gerir félag­inu kleift að bregð­ast skjótt við fyr­ir­spurnum frá lög­reglu og öðru lög­bærum yfir­völd­um, þ.m.t. Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Þá gerði Fjár­mála­eft­ir­litið athuga­semdir við að innri reglur Borg­unar væri ekki að fullu í sam­ræmi við lög.

Upp­fylla ekki kröfur laga

Sam­an­dregið þá er það nið­ur­staða Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að fram­kvæmd, verk­lag og eft­ir­lit Borg­unar hf. í tengslum við aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka vegna færslu­hirð­ingar félags­ins erlendis upp­fyllti ekki með við­un­andi hætti þær megin kröfur sem gerðar eru í lög­um. Auk úrbóta­kröfu gerði eft­ir­litið kröfu um að Borgun fari yfir fram­kvæmd áreið­an­leikakann­anna vegna ann­arra við­skipta­manna á alþjóða­sviði, en þeirra sem voru í úrtak­inu, og gæti Borgun hf. ekki full­nægt skil­yrðum laga skyldi félagið án tafar binda enda á við­skipta­sam­band við þá við­skipta­menn. „Varð­andi aðrar athuga­semdir Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um fram­fylgni Borg­unar hf. við lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka krafð­ist Fjár­mála­eft­ir­litið við­eig­andi úrbóta og að félagið skil­aði aðgerð­ar­á­ætlun til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins þar sem sýnt væri hvernig það hygð­ist bregð­ast við athuga­semdum og úrbóta­kröfum og hvernig tryggt yrði að aðgerðir fyr­ir­tæk­is­ins gegn pen­inga­þvætti sam­ræmd­ust lögum nr. 64/2006, leið­bein­andi til­mælum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins nr. 5/2014 og innri reglum félags­ins. Fjár­mála­eft­ir­litið veitti Borgun hf. tvo mán­uði, frá dag­setn­ingu loka­skýrslu, til að ljúka fram­an­greindum úrbót­u­m,“ segir í nið­ur­stöðu eft­ir­lits­ins.

Gríð­ar­legur hagn­aður á síð­ustu árum

Borgun sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í morg­un, áður en að nið­ur­staða Fjár­mála­eft­ir­lits­ins var birt, þar sem for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Haukur Odds­son, seg­ist taka athuga­semdum þess alvar­lega og að það muni „tryggja í sam­­starfi við FME að starf­­semin full­nægi betur en nú er ítr­­ustu skil­yrðum laga m.t.t. könn­unar á áreið­an­­leika við­­skipta­­manna og skyldum þátt­um, en lítið hefur reynt á túlkun þess­­ara reglna, sem eru um ýmis­­­legt mats­­kennd­­ar, í íslenskri stjórn­­­sýslu- og rétt­­ar­fram­­kvæmd. Borgun hefur þess í stað reitt sig á regl­­ur, túlkun og úttektir korta­­fé­lag­anna Visa og MasterCard sem byggja á sömu evr­­ópu­lögum og hér um ræð­­ir. Það er brýnt að taka fram að hvorki er um að ræða grun um pen­inga­þvætti né fjár­­­mögnun hryðju­verka. Borgun hefur þegar haf­ist handa við að upp­­­fylla fyr­ir­­mæli FME, meðal ann­­ars með því að segja upp við­­skipta­­sam­­bandi við nokkra aðila.“

Rekstur Borg­unar hefur gengið vel á und­an­­förnum árum. Hagn­aður árs­ins af reglu­­legri starf­­semi var undir einum millj­­arði króna árið 2013.

Í fyrra var hann rúm­­lega 1,6 millj­­arðar króna. Í til­kynn­ingu sem fyr­ir­tækið sendi frá sér fyrir viku sagði: „Meiri­hluti þjón­ustu­tekna Borg­unar hf. kemur frá Alþjóða­sviði þar sem vöxtur félags­ins hefur verið mest­ur.  Mikil aukn­ing varð á árinu í færslu­hirð­ingu erlend­is, svo sem í Bret­landi, Ung­verja­landi og Tékk­landi og eru erlendir við­skipta­vinir Borg­unar hf. í þessum löndum nú þegar orðnir fleiri en íslenskir við­skipta­vin­ir“. 

En hlut­­deild fyr­ir­tæk­is­ins í söl­unni á Visa Europe skiptir mestu máli þegar virð­is­aukn­ing fyr­ir­tæk­is­ins er met­in. Sú sala skil­aði Borgun 6,2 millj­­örðum króna. Sam­tals verða greiddir 7,7 millj­­­arðar króna í arð­greiðslur til eig­enda Borg­unar vegna síð­­­ustu þriggja ára.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None