Engin stefnubreyting í málefnum aflandskrónueigenda

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður tókust á um áætlun um losun hafta á þingi í morgun.

Sigmundur Bjarni
Auglýsing

Það kemur ekki til greina að hleypa aflandskrónu­eig­endum úr landi ef það þýðir að ekki verði hægt að fara í fullt afnám hafta. Þetta segir for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son. Hann segir enga stefnu­breyt­ingu eða áherslu­breyt­ingu hafa orðið hvað þetta varðar við rík­is­stjórn­ar­skipt­i. 

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, spurði Bjarna um þetta í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Sig­mundur tal­aði um fréttir síð­ustu daga, um að til standi að semja við kröfu­hafa sem ekki vildu taka þátt í útboði Seðla­bank­ans á síð­asta ári, um að hleypa þeim út úr land­inu með pen­inga sína. Það hefði verið grunn­for­senda útboðs­ins að allir væru með­vit­aðir um að þeir sem ekki tækju þátt í því myndu sitja eftir og fara aft­ast í röð­ina. „Er það stefnan að hverfa frá þess­ari ákvörð­un?“ spurði Sig­mundur Dav­íð. 

„Við ætlum ekki að fórna neinu til­ þess að gera þessum aðilum mögu­legt að kom­ast út úr land­inu með sínar eignir ef að það þýðir á ein­hvern hátt að eftir sitji allur almenn­ing­ur, fyr­ir­tækin í þessu landi, sveit­ar­stjórnir og aðr­ir, líf­eyr­is­sjóð­ir, í höftum með ein­hvern vanda. Um þetta hefur málið snú­ist allan tím­ann. Það hefur engin stefnu­breyt­ing orðið á því að það kemur ekki til greina að skapa ein­hverja lausn fyrir aflandskrónu­eig­endur sem ekki felur það um leið í sér að hægt verði að fara í fullt afnám hafta,“ sagði Bjarn­i. 

Auglýsing

Sig­mundur Davíð spurði Bjarna einnig um þær breyt­ingar sem gerðar voru hjá nýrri rík­is­stjórn að færa mál­efni Seðla­bank­ans frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu og til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Hann vitn­aði í svar Bjarna við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið, þar sem fram kom að vegna sjálf­stæðis Seðla­bank­ans væri æski­legt að yfir­stjórn hans og sam­þykkt pen­inga- og geng­is­stefnu sé í öðru ráðu­neyti en því sem fer með fjár­mál rík­is­ins. Sig­mundur Davíð spurði hvenær Bjarni hefði upp­götvað þetta, hvort það hefði verið áður en hann tók við emb­ætti fjár­mála­ráð­herra eða á með­an, og hvaða hags­munir hefðu orðið ofan á hjá honum sjálfum þegar hags­muna­á­rekstrar hefðu komið upp. 

Bjarni svar­aði því til að þetta væru ein rökin fyrir því að færa mál­efni Seðla­bank­ans milli ráðu­neyta. Það væri vegna til­tölu­lega nýrrar laga­breyt­ing­ar, og meðal ann­ars vegna þess að Seðla­bank­inn geti við vissar aðstæður kallað eftir fram­lagi frá rík­inu. Bjarni seg­ist ætla að lyfta upp því hlut­verki for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sem hafi með hag­stjórn almennt að gera, og ráða inn sér­fræð­inga í for­sæt­is­ráðu­neytið í þessu skyn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None