Hollenska stéttarfélagið FNV hefur lagt fram kæru á hendur Samskipum til lögreglu í Hollandi. Þetta kom fram í hollenska fréttaskýringarþættinum EenVandaag í vikunni, en Samskip er sakað um að mismuna vörubílstjorum eftir þjóðerni. Vörubílstjórar frá Austur-Evrópu sem starfa í Hollandi eru á launakjörum frá heimalöndum sínum.
Samskip hafnar alfarið ásökunum og segir í yfirlýsingu að starfsemin í Hollandi sé í fullu samræmi við lög. Í ítarlegri tilkynningu félagsins vegna málsins segir að engar upplýsingar liggi fyrir um hvort kæran hafi verið tekin til meðferðar eða í hvað henni felst nákvæmlega.
„Í fréttinni er FNV sagt hafa kært Samskip í Hollandi fyrir brot á vinnulöggjöf þar í landi varðandi réttindi bílstjóra, en félagið hefur engar aðrar spurnir af kærunni, eða hvort hún verður tekin til meðferðar. Starfsemi Samskipa er að fullu í samræmi við lög í Hollandi og Evrópureglugerðir. Félagið leggur áherslu á að bílstjórum sé greitt í samræmi við viðeigandi lög og reglugerðir og gerir ráð fyrir því að undirverktakar sem fyrir félagið starfa geri slíkt hið sama. Séu undirverktaka uppvísir að öðru er samningum við þá rift eins og gerst hefur í tvígang á s.l. ári. Að mati Samskipa er það stjórnmálamanna að finna lausnir á flóknum málum sem til komin eru vegna hagsmunaárekstra sem snúa að frjálsu flæði fólks og þjónustu milli Evrópulanda annars vegar og mismunandi launastigs og ríkidæmis landanna hins vegar. Á síðasta ári kannaði hollenska Umhverfis- og samgöngueftirlitið (ILENT) stöðu mála hjá fjölda fyrirtækja, þar á meðal hjá Samskipum. Skýrsla ILENT, sem Samskip sýndu fullt samstarf, var jákvæð að langmestu leyti. Tvö minniháttar mál komu upp þar sem annað sneri að glötuðum gögnum úr flutningabíl sem var í leigu annars staðar frá og svo misskilnings um hver væri skráður vinnuveitandi hollensks bílstjóra sem ráðinn hafði verið. Vegna þessara mála greiddu Samskip sekt upp á 18.000 evrur alls, eða sem svarar til tveggja milljóna króna. Hvorki málin, né sektir, snúa að misnotkun á bílstjórum. Þá fengu Samskip engar aðrar viðvaranir eða sektir en eiga í stöðugum og uppbyggilegum samskiptum við ILENT,“ segir í tilkynningu Samskip.