Guðni Th. vill landsdóm burt

Forseti Íslands segir að það hafi verið „feigðarflan“ í endurreisnarstarfinu eftir hrun að nýta fornt og úrelt ákvæði um landsdóm. Geir H. Haarde hlaut dóm fyrir landsdómi einn íslenskra ráðamanna.

Guðni Th. Jóhannesson
Auglýsing

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, segir að hann vilji ákvæði um lands­dóm burt úr stjórn­ar­skrá lands­ins. Dóm­ur­inn eigi ekk­ert erindi þang­að. Þetta kemur fram í við­tali sem birt er í tíma­riti Lög­réttu og kemur út í dag. Morg­un­blaðið greinir frá.

Þar er haft eftir Guðna: „Ég sagði það áður en ég tók við emb­ætti for­seta Íslands og segi það enn að í end­ur­reisn­ar­starf­inu eftir hrun var feigð­ar­flan að nýta forn og úrelt ákvæði um lands­dóm.“ For­set­inn segir að það hafi sýnt sig að nið­ur­staða dóms­ins hafi fremur sundrað en sam­einað og það á versta tíma. Nið­ur­staða lands­dóms, þegar hann var kall­aður sam­an, hafi ekki verið í sam­ræmi við þá stefnu að þeir sem bæru póli­tíska ábyrgð myndu axla hana og taka afleið­ing­un­um. „Látum þetta okkur að kenn­ingu verða enda hygg ég að eng­inn vilji hafa ákvæði um lands­dóm í stjórn­ar­skránni. Finnið þann sem vill að málum verði hagað með sama hætti í fram­tíð­inni. Ég efast um að ykkur tak­ist það.“

Í við­tal­inu segir Guðni einnig að þjóðin telji ekki skyn­sam­legt að for­set­inn hafi einn vald til að synja lög­um. Fólki í land­inu vilji ákvæði í stjórn­ar­skrá um að ákveðin fjöldi und­ir­skrifta geti kraf­ist þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Auglýsing

Rammpóli­tísk ákvörðun um að ákæra bara Geir

Rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþingis komst að þeirri nið­­ur­­stöðu í skýrslu sinni, sem komu út í apríl 2010, að nokkrir íslenskir ráð­herrar hefðu sýnt af sér van­rækslu í starfi í aðdrag­anda hruns­ins. Þing­­manna­­nefnd sem skipuð var til að fjalla um skýrsl­una komst að þeirri nið­­ur­­stöðu í sept­­em­ber 2010 að ákæra ætti fjóra fyrr­ver­andi ráð­herra, þau Geir H. Haarde, Árna Mathiesen, Ing­i­­björgu Sól­­rúnu Gísla­dóttur og Björg­vin G. Sig­­urðs­­son, fyrir lands­­dómi vegna þess­­arar van­rækslu. Þegar alþing­is­­menn kusu um málið varð nið­­ur­­staðan hins vegar sú að ein­ungis Geir var kærð­­ur.

Málið var rammpóli­­tískt og allt varð hrein­­lega vit­­laust þegar nokkrir þing­­menn Sam­­fylk­ingar ákváðu að segja já við ákæru á hendur ráð­herrum Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins en hlífa sínum flokks­­mönn­­um. Lands­­dóms­­mál­inu lauk með því að Geir var fund­inn sekur um einn ákæru­lið en þeir voru upp­­haf­­lega sex. Honum var ekki gerð refs­ing. Geir kærði máls­­með­­­ferð­ina til Mann­rétt­inda­­dóm­stóls Evr­­ópu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None