Hagvöxtur var 7,2 prósent í fyrra – Sá langmesti frá 2007

Þjónustuútflutningur er í fyrsta sinn stærri hluti af landsframleiðslu en vöruútflutningur. Ástæðan er ferðaþjónusta. Þriðji mesti hagvöxtur á einu ári í tæp 30 ár. Bara 2004 og 2007 skiluðu meiri vexti.

7DM_9652_raw_1782.JPG
Auglýsing

Lands­fram­leiðsla jókst um 7,2 pró­sent í fyrra á Íslandi að raun­gildi. Það er mesti hag­vöxtur sem landið hefur upp­lifað á einu ári frá árinu 2007, þegar fyr­ir­hruns góð­ærið náði hámarki. Þá var hag­vöxtur 9,4 pró­sent og byggði fyrst og síð­ast á vexti tengdum fjár­mála­fyr­ir­tækj­um, sem síðar féllu haustið 2008.

Hag­stofan birti í morgun tölur um hag­vöxt síð­asta árs. Vöxtur hefur verið hér­lendis á hverju árinu 2011 en sá sem átti sér stað í fyrra sker sig veru­lega úr að umfangi. Á tíma­bil­inu 2011 og út árið 2015 var hag­vöxtur frá 1,2 til 4,4 pró­sent. Á árinu 2016 var hann, líkt og fyrr sagði, 7,2 pró­sent. Það er líka þriðji mesti hag­vöxtur sem mælst hefur á einu ári á síð­ustu tæpu þremur ára­tug­um. Einu árin þar sem hag­vöxtur var meiri á því tíma­bili voru 2004 (8,1 pró­sent) og 2007 (9,4 pró­sent).

Auglýsing

Í frétt Hag­stof­unnar segir að lands­fram­leiðsla sé nú tíu pró­sent meiri að raun­gildi en hún var árið 2008. Einka­neysla jókst um 6,9 pró­sent, sam­neysla um 1,5 pró­sent og fjár­fest­ing jókst um 22,7 pró­sent. Árlegur vöxtur einka­neyslu hefur ekki mælst meiri frá árinu 2005 en að árinu 2007 und­an­skildu hefur einka­neysla ekki mælst meiri að raun­gildi hér á landi.

Þjón­usta stærra hlut­fall af lands­fram­leiðslu í fyrsta sinn

Útflutn­ingur jókst um 11,1 pró­sent á árinu 2016 en inn­flutn­ingur um 14,7 pró­sent. Því dró utan­rík­is­verslun úr hag­vexti. Þrátt fyrir það var afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum 158,8 millj­arðar króna á árinu 2016. Útflutn­ingur á þjón­ustu var 26,8 pró­sent af lands­fram­leiðslu og er það í fyrsta sinn i frá því að gerð þjóð­hags­reikn­inga hófst árið 1945 sem tekjur af útfluttri þjón­ustu mæl­ast hærri en af vöru­út­flutn­ingi. Ástæðan er ein­föld: gríð­ar­legur vöxtur í ferða­þjón­ustu, sem er nú stærsta stoðin undir íslenskum efna­hag.

Fjár­fest­ing jókst um 22,7 pró­sent á síð­asta ári en árlegur vöxtur fjár­fest­ingar hefur ekki mælst meiri síðan árið 2006. Umtals­verð aukn­ing var í fjár­fest­ingu atvinnu­veg­anna, eða 24,7 pró­sent og sömu­leiðis í íbúða­fjár­fest­ingu, eða 33,7 pró­sent. Á sama tíma­bili jókst fjár­fest­ing hins opin­bera um 2,5 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None