Heiðar endurkjörinn stjórnarformaður Vodafone

Nýtt hlutafé verður gefið út til að borga hluta kaupverðs þeirra eigna sem verið er að kaupa af 365 miðlum. Virði hlutarins sem eigendur 365 fá hefur þegar hækkað um 200 milljónir.

Auglýsing
Heiðar Guðjónsson.
Heiðar Guðjónsson.

Heiðar Guð­jóns­son verður áfram stjórn­ar­for­maður Fjar­skipta, móð­ur­fé­lags Voda­fo­ne. Sjálf­kjörið var í stjórn félags­ins á aðal­fundi í gær. Auk Heið­ars sitja í stjórn­inni Anna Guðný Ara­dótt­ir, Hildur Dungal, Hjör­leifur Páls­son og Yngvi Hall­dórs­son. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar.

­Þrír stærstu eig­endur Fjar­skipta eru líf­eyr­is­sjóð­irnir Gildi, LSR og Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna. Þeir eiga sam­an­lagt tæpan þriðj­ung í Fjar­skipt­um. Félag Heið­ars, Ursus, er sem stendur fjórði stærsti eig­andi félags­ins með 6,4 pró­sent hlut. Það mun breyt­ast á næst­unni því aðal­fund­ur­inn sam­þykkti í gær að hækka hlutafé sitt um 32,4 millj­ónir hluta og nota hækk­un­ina að öllu leyti til að greiða fyrir þær eignir sem Fjar­skipti hafa sam­þykkt að kaupa af 365 miðl­um.

Um er að ræða fjar­skipta- og ljós­vaka­miðla 365 auk frétta­vefs­ins Vís­ir.­is. Eig­endur 365 miðla munu því fá um tíu pró­sent hlut í Fjar­skiptum á geng­inu 52,5 krónur á hlut. Virði hlut­ar­ins sam­kvæmt kaup­samn­ingi er því 1,7 millj­arðar króna. Miðað við gengi Voda­fone á mark­aði í dag, sem er 59,4 krónur á hlut, er virði hlut­ar­ins hins vegar rúm­lega 1,9 millj­arðar króna.

Auglýsing

Stærsti eig­andi 365 miðla eru félög í eigu Ingi­bjargar Pálma­dótt­ur. Þau munu eign­ast um 7,5 pró­sent hlut í Fjar­skiptum gangi kaupin í gegn og verða þar með óbeint þriðji stærsti eig­andi félags­ins. Ingi­björg og tengdir aðilar yrðu líka stærsti ein­stak­lings­fjár­fest­arnir í Fjar­skipt­um, þ.e. með stærri eign­ar­hlut en stjórn­ar­for­mað­ur­inn Heiðar Guð­jóns­son. 

Sam­keppn­is­eft­ir­litið á hins vegar eftir að sam­þykkja kaup Fjar­skipta á umræddum eignum 365 miðla og mun taka sér 110 daga til að skoða sam­run­an. Ef af verður þá mun eiga sér stað stærsti sam­runi fjar­skipta og fjöl­miðl­unar Í Íslands­sög­unn­i. 

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um kaup Fjar­skipta á flestum eignum 365 miðla í frétta­skýr­ingu í vik­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None