Þorsteinn: Vel hægt að taka uppbyggilega umræðu án niðurrifs

Ráðherra velferðarmála tjáir sig um gagnrýni Mikaels Torfasonar rithöfundar, sem hefur verið að fjalla um fátækt á Íslandi á Rás 1 sem í sérstökum þáttum um málefnið.

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Auglýsing

Þor­steinn Víglunds­son, vel­ferð­ar­ráð­herra, gerir umfjöllun í Silfr­inu á RÚV, að umtals­efni á Face­book síðu sinni og seg­ist hann velta því fyrir sér hvort ekki sé hægt ræða um málin með upp­byggi­legum hætti, í stað þess að tala með „niðr­andi hætti“ um menn og mál­efni.

Ég velti því stundum fyrir mér hvort ekki sé hægt að taka upp­byggi­lega umræðu um það sem betur má fara í sam­fé­lag­inu án þess að þurfa að tala með niðr­andi hætti um núver­andi fyr­ir­komu­lag eða þá sem við það starfa. Sjálfur efast ég ekki um góðan ásetn­ing Mika­els í garð þeirra sem glíma við fátækt.“

„Að sama skapi efast ég ekki um minn eigin vilja í þeim efnum eða allra sem ég hef kynnst á stuttum starfs­tíma mínum í Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu eða inni á Alþingi. Ég er sann­færður um að allir þeir sem á þingi eru í dag brenna fyrir hug­sjónum sínum og vilja láta gott af sér leiða þó svo skoð­anir geti verið mis­jafnar á því hvaða leiðir séu bestar,“ segir Þor­steinn á Face­book síðu sinni.

Auglýsing

Í fyrr­nefndum þætti gagn­rýndi Mik­ael stjórn­völd harð­lega fyrir að búa til fátækt­ar­gildrur í sam­fé­lag­inu sem væru sífellt að stækka. Nefndi hann meðal ann­ars stöðu mála á leigu­mark­aði máli sínu til stuðn­ings, en margir ættu í stök­ustu vand­ræðum með að ná saman endum um hver mán­að­ar­mót, vegna hárrar leigu. Sagði hann rík­is­stjórn­ina vera „rík­is­stjórn atvinnu­lífs­ins“ sem hugs­aði ekki um þá fátæku í sam­fé­lag­in­u. 

Þættir Mika­els á Rás 1 um fátækt hafa vakið athygli og umtal, í þátt­unum er fjallað um fátækt á Íslandi frá ýmsum hlið­u­m. 

Þor­steinn segir í færslu sinni á rík­is­stjórnin sem nú hafi starfað í um tvo mán­uði hafa mik­inn metnað fyrir því efla vel­ferð­ar­mála­flokk­inn. Hann seg­ist jafn­framt ekki finna fyrir öðru á Alþingi en að þing­menn í öllum flokkum séu til­búnir að gera slíkt hið sama. Þrátt fyrir góðar hag­tölur og  mikla kaup­mátt­ar­aukn­ingu, að með­al­tali, þá þurfi ávallt að sýna metnað þegar kemur að því að aðstoða þá sem þurfa á því að halda.

Þó svo við stöldrum við og hrósum því sem vel hefur tek­ist til með (og fjöl­margir eiga lof skilið fyr­ir) dregur það ekki á nokkurn hátt úr metn­aði okkar til að gera bet­ur. Það þýðir ein­ungis að við höfum úr betri stöðu að spila en ella. Þessi rík­is­stjórn mun, líkt og fyrri rík­is­stjórn­ir, verða dæmd af verkum sínum líkt og aðrar rík­is­stjórn­ir.“

„Áform hennar um for­gangs­röðun í þágu vel­ferðar eru sett fram með skýrum hætti í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Þau áform munu end­ur­spegl­ast í fyrstu fimm ára rík­is­fjár­mála­á­ætlun stjórn­ar­inn­ar, sem kynnt verður á næstu vik­um, fjár­lögum næsta árs og þeim frum­vörpum sem lögð verða fram á næstu vikum og mán­uð­um. Ég reikna með að Mik­ael muni kynna sér þau áform vand­lega og von­andi koma með upp­byggi­lega gagn­rýni á. Sjálfur er ég ávallt reiðu­bú­inn að hlusta á slík ráð og taka slíkt sam­tal,“ segir Þor­steinn á Face­book síðu sinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None