Eigendur Arion banka geta á grundvelli endurskipulagningar á fjármagnsskipan bankans greitt allt að 70 milljarða króna út í formi arðs. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, en greint er frá því í blaðinu að verulegar líkur séu á því að eigið fé bankans verði lækkað í kjölfar eignarhaldsbreytinga. Eins og kunnugt er keyptu þrír vogunarsjóðir, ásamt Goldman Sachs bankanum, tæplega 30 prósent hlut í bankanum.
Eftir kaupin er Kaupskil, félag í eigu Kaupþings, enn stærsti eigandi Arion banka með 57,9 prósent hlut. Íslenska ríkið á 13 prósent en sjóðirnir Attestor Capital LLP (í gegnum Trinity Invesment Designated Acitivity Company) og Taconic Capital Advisors UK LLP (í gegnum TCA New Sidecar III s.a.r.l.) eiga nú 9,99 prósent hlut hvor. Þá mun Sculptor Investments s.a.r.l. (félag tengt Och-Ziff Capital Management Group) eiga 6,6 prósent hlut og Goldman Sachs International 2,6 prósent hlut (í gegnum ELQ Investors II Ltd.).
Eiginfjárstaða bankans er sterk um þessar mundir og nam ríflega 211 milljörðum um nýliðin áramót en eiginfjárhlutfallið stóð í 27,1 prósent.
„Hins vegar standa eiginfjárkröfur þær sem stjórnvöld gera á hendur bankanum í 20,7% og því má hæglega lækka eigið fé til samræmis við það. Auk þess er bankanum heimilt að gefa út víkjandi skuldabréf til að mæta nokkrum hluta eiginfjárkröfunnar. Þannig sýndu forsvarsmenn bankans fram á það í kynningu sem fylgdi ársuppgjöri síðasta árs að hagstæð samsetning eiginfjár gæti falist í að hlutfall hefðbundins eigin fjár stæði í 16,8% en aðrir hlutar þess í 5,4%.
Fram kemur í umfjöllun um mál þetta í ViðskiptaMogganum í dag, að verulegar líkur séu á því að í kjölfar þeirra eignarhaldsbreytinga sem urðu á bankanum um nýliðna helgi verði eigið fé hans lækkað,“ segir í umfjöllun Morgunblaðsins í dag.