Mun taka 3 til 4 ár að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði

Þrátt fyrir mikla uppbyggingu víða á höfuðborgarsvæðinu er langt í að jafnvægi skapist milli framboðs og eftirspurnar.

Fasteignir hús
Auglýsing

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er nú tæp­lega fjögur þús­und íbúðir í bygg­ingu sem koma munu á markað á næstu tveimur árum, og þá er fjöldi bygg­ing­ar­svæða til­bú­inn fyrir hraða upp­bygg­ingu. Jafn­vægi mun þó ekki skap­ast á mark­aðnum fyrr en eftir 3 til 4 ár, að því er segir í umfjöllun Sam­taka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (SSH) um stöðu mála á fast­eigna­mark­aði svæð­is­ins. 

Mikil spenna hefur ein­kennt mark­að­inn að und­an­förnu vegna skorts á íbúðum til sölu, og hefur fast­eigna­verð hækkað hratt, meðal ann­ars af þeim sök­um. Hækk­unin nemur 18,6 pró­sentum á síð­ustu tólf mán­uð­um. Þjóð­skrá hefur metið það sem svo, miðað við sögu­lega þró­un, að það vanti um átta þús­und íbúðir inn á mark­að­inn til að anna eft­ir­spurn.

Lík­legt er að talið að fast­eigna­verð muni halda áfram að hækka á næstu árum, en ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Knight Frank segir að hvergi í heim­inum hafi verðið hækkað jafn mikið á und­an­förnu ári og hér á land­i. 

Auglýsing

Í umfjöllun á vef SSH segir að mikil deyfð yfir upp­bygg­ingu í kjöl­far banka­hruns­ins hafi skapað mik­inn vanda á mark­aðn­um.

„Stjórn SSH hefur látið taka saman upp­lýs­ingar um stöðu hús­næð­is­mála á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og áætl­anir um upp­bygg­ingu sveit­ar­fél­ganna. Eins og margoft hefur verið bent á er skortur á íbúða­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Að jafn­aði er árleg þörf á nýjum íbúðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 1.500 – 1.600 íbúð­ir. Í kjöl­far banka­hruns datt nýsmíði íbúða nán­ast alveg niður og á 7 ára kafla (2009 – 2015) bætt­ust tæp­lega 1.000 íbúðir við á ári hverju.“

„Að teknu til­liti til lít­illar upp­bygg­ingar og þró­unar mann­fjöld­ans er það mat SSH að í byrjun árs 2017 skorti um 1.700 íbúðir til að mark­að­ur­inn sé í jafn­væg­i. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru nú tæpar 4.000 íbúðir í bygg­ingu sem koma munu á markað á næstu tveimur árum. Einnig er fjöldi bygg­inga­svæða þar sem hægt er að hefja upp­bygg­ingu strax eða á næstu miss­er­um. Með mark­vissri upp­bygg­ingu á þessum svæðum mun íbúða­mark­að­ur­inn ná jafn­vægi á næstu 3-4 árum,“ segir í umfjöll­un­inni.

Hér má sjá yfirlit yfir byggingaráform, eins og þau birtust í umfjöllun SSH.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None